Sendiherra segir Guðlaug Þór vega að starfsheiðri embættismanna í eigin ráðuneyti

Stefán Skjald­ar­son sendi­herra fer hörðum orðum um frum­varp Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra og fram­ferði ráð­herr­ans sjálfs í umræðum um málið. Segir hann ráð­herra gera emb­ætt­is­mönnum upp póli­tískar skoð­anir.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stefán Skjald­ar­son, sendi­herra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, segir að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafi haft í frammi „til­hæfu­lausar dylgjur“ um að emb­ætt­is­menn sem gagn­rýni frum­varp ráð­herr­ans um breyt­ingar á starfs­manna­málum í utan­rík­is­þjón­ust­unni hafi hag af því að Ísland ger­ist aðili að Evr­ópu­sam­band­inu.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í harð­orðri umsögn sendi­herr­ans við frum­varpið. Þar segir Stefán að telja verði „í hæsta máta óeðli­legt og óvið­eig­andi að ráð­herra freisti þess að sverta orð­spor emb­ætt­is­manna í sínu eigin ráðu­neyti og gera þeim upp póli­tískar skoð­anir.“

Sendi­herr­ann segir að með þessu sé vegið að starfs­heiðri og fag­mennsku emb­ætt­is­manna, sem séu skyldugir til þess að fara að lögum og reglum, hafa almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi í störfum sínum og styðja við og fram­fylgja stefnu þeirra rík­is­stjórna sem sitja hverju sinni. Ráðherra gefi í skyn að þeim sé ekki treystandi.

„Kannski krist­all­ast í svona mál­flutn­ingi og þess­ari laga­smíð merg­ur­inn máls­ins, hug­myndin um að emb­ætt­is­menn séu póli­tískt skip­aðir og þar af leið­andi aðeins treystandi ef við­kom­andi ráð­herra hefur sjálfur valið þá til ábyrgð­ar­starfa,“ segir í umsögn sendi­herr­ans, sem er heilt yfir gagn­rýn­inn á frum­varp ráð­herra, sem nú er lagt fram með breyt­ingum sem utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis gerði á því á síð­asta þingi.

Heimild til að skipa hvern sem er án auglýsingar

Ekki eru þó gerðar miklar breyt­ingar á því sem einna helst hefur verið gerð athuga­semd við í tengslum við frum­varpið, nefni­lega heim­ild ráð­herra á hverjum tíma til að skipa sendi­herra án aug­lýs­ingar. 

„Reynt er að láta líta út sem að gerðar verði mennt­un­ar­kröfur eða reynslu­kröfur varð­andi alþjóða­mál og utan­rík­is­mál sem for­sendu fyrir að geta talist hæfur til að verða skip­aður tíma­bundið sendi­herra án aug­lýs­ingar. Raunin er þó, sam­kvæmt frum­varp­inu, að einnig má skipa aðila með „sér­tæka reynslu sem nýt­ist í emb­ætti.“ Þetta þýðir á manna­máli að hægt er að skipa hvem sem er í slíkt emb­ætti ef vilji er til,“ skrifar sendi­herr­ann um þetta efni.

Stefán, sem hefur verið sendi­herra Íslands í Ósló og Peking, segir að Alþingi sé þó auð­vitað í sjálfs­vald sett að skapa stjórn­sýsl­unni það lagaum­hverfi sem það vill innan marka stjórn­ar­skrár.

Hann segir þó að ef svo sé komið fyrir íslenskri stjórn­sýslu „að ráð­herrar treysti ekki lengur sínum emb­ætt­is­mönnum nema þeir hafi valið þá sjálfir og ef Alþingi vill taka undir slík sjón­ar­mið og bregð­ast við með laga­setn­ingu sem opnar á enn frek­ari póli­tískar ráðn­ingar“, sé það umhugs­un­ar­efni sem kalli á umfjöllun á breið­ari vett­vangi en í tengslum við þetta frum­varp eitt og sér.

Enginn hafi mælt með samþykkt frumvarpsins

Frumvarp Guðlaugs Þórs hefur verið umdeilt og Stefán er ekki einn um að hafa gert við það veru­legar athuga­semdir. Hann vekur athygli á því að engar þær umsagnir sem komu fram um efni upp­haf­legs frum­varps, og eigi að mestu við um núver­andi frum­varp, hafi mælt með sam­þykkt frum­varps­ins.

„Áður hefur komið fram að það setji emb­ætt­is­menn í erf­iða stöðu að gefa umsögn um frum­varp síns ráð­herra, sér­stak­lega umsagnir sem sá vafa um ágæti máls­ins. Það er því hæpið að túlka það sem ánægju með frum­varpið að fáar umsagnir ber­ist. Þvert á móti vekur athygli að eng­inn skuli mæla því bót þrátt fyrir mögu­legan und­ir­liggj­andi freistni­vanda um að slíkt gæti komið sér vel í starfi,“ skrifar Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár