Bankasýslan útilokar ekki að borga seljendum Íslandsbankabréfa 263 milljónir í „valkvæða þóknun“

Í samningi Banka­sýslu ríkisins við sölu­aðilana í útboðinu á hluta­bréfum íslenska ríkisins í Íslands­banka er ákvæði um að stofnunin geti ákveðið að greiða þessum fyrir­tækjum auka­þóknun upp á 0,5 prósent. Þrátt fyrir umræðuna og gagn­rýnina á söluna hefur Banka­sýslan enn ekki útilokað að greiða þessum fyrir­tækjum umrædda valkvæða þóknun.

Banka­sýsla ríkisins útilokar ekki að greiða „valkvæða sölu­þóknun“ upp á rúmlega 263 milljónir króna til þeirra banka og verðbréfa­fyrirtækja sem seldu hlutabréf Íslands. Þetta kemur fram í minnis­blaði Banka­sýslu ríkisins til fjár­laganefndar sem stofnunin sendi frá sér í gær. Ekki kemur fram á hvaða forsendum og að hvaða skilyrðum uppfylltum Banka­sýsla ríkisins á eða getur greitt umrædda valkvæða þóknun til fyrir­tækjanna. Þessi þóknun getur bæst við 440 milljóna króna grunn­þóknun söluaðila hluta­bréfanna og verður heildar­þóknunin til þeirra því tæplega 703 milljónir króna. 

Orðrétt segir Banka­sýslu ríkisins í minnis­blaðinu til fjár­laganefndar: „Engin ákvörðun verður tekin um greiðslu á valkvæðri þóknun, sem getur að hámarki orðið 0,5% af sölu­andvirði, fyrr en að niður­staða athugunar Fjármála­eftirlits Seðla­banka („FME“) liggur fyrir og hefur stofnunin sagt opinber­lega að ef einhverjir sölu­ráðgjafar hafi brugðist stofnuninni þá muni valkvæð þóknun vera skert eða ekki greidd út.“

Þegar Banka­sýsla ríkisins sagði fyrir skömmu að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Ætla starfsmenn Bankasýslunnar að greiða þessa þóknun úr eigin vasa?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár