Jón Baldvin hélt ekki ræðu og henti ekki manni í sundlaug

Bryndís Schram, fyrr­verandi sendi­herrafrú, segir nýja bók Björns Jóns Braga­sonar einkennast af slúðri og rang­færslum. Ekkja við Kalorama Road sýndi hjónunum andúð.

Umdeildur
Umdeildur Jón Baldvin Hanni­bals­son er umdeildur. Hann er þó sagður vera alsak­laus af því að úthúða Banda­ríkja­mönnum í ræðu og henda full­trúa þeirra í sund­laug. Mynd: pressphotos.biz

„Ástæðan fyrir því, að við héldum ekki kveðjuhóf haustið 2002, var sú,  að kveðju­hófin, sem efnt var til af vinum okkar, voru orðin svo mörg,  að dagskráin rúmaði ekki fleiri. Það var sumsé ekkert kveðjuhóf á vegum sendi­ráðsins. Af sjálfu leiðir, að JBH flutti enga slíka ræðu og þar af leiðir, að enginn gekk út  í mótmæla­skyni,” skrifar Bryndís Schram, fyrr­verandi senda­herrafrú Íslands í Banda­ríkjunum, vegna uppljóstrana í Byltingu, bók Björns Jóns Braga­sonar, þar sem því er haldið fram að Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi sendi­herra, hefði hegðað sér ósæmilega í kveðju­veislu þegar hann var að hætta sem sendi­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár