Kría fjárfestir fyrir rúma 2,2 milljarða króna í þremur íslenskum vísisjóðum

Eyrir vöxtur, Crowberry II og Frumtak 3 fá fjármuni frá ríkis­sjóðnum Kríu til að fjárfesta í sprota- og nýsköpunar­fyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var ráðherra málaflokksins þegar Kríusjóðurinn var settur á fót árið 2019.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir var ráð­herra mála­flokks­ins þegar Kríu­sjóð­ur­inn var settur á fót árið 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Kría, hvata­sjóður á vegum íslenska ríkisins sem fjár­festir í vísi­sjóðum sem settur var á fót 2019, mun fjárfesta í þremur íslenskum sérhæfðum fjár­festingar­sjóðum fyrir samtals 2,2 milljarða króna á næstu árum. Sjóðirnir eru Eyrir Vöxtur, Frumtak 3 og Crowberry II. Fjárfest verður fyrir 810 milljónir króna í Frumtaki 3 og Crowberry II og fyrir 620 milljónir króna í Eyri Vexti.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Kríu.

Vísi­sjóðirnir þrír eiga það jafnframt sameiginlegt að vera stofnaðir og fjár­magnaðir á árinu sem nú er að líða. Tveir þeirra, Eyrir Vöxtur og Frumtak 3, hafa nú lokið fyrir fjár­mögnun en Crowberry II tekur við fjár­festingar­loforðum fram á mitt ár 2022. Áætlaður líftími sjóðanna þriggja er tíu ár.

Í tilkynningunni segir: „Eyrir Vöxtur er sex milljarðar króna að stærð og í umsýslu Eyrir Venture Management. Sjóðurinn mun fjárfesta í sprota­fyrirtækjum sem komin eru með vöru eða þjónustu, byrjuð að afla tekna og eru með góða vaxtar­möguleika. Frumtak 3 er sjö milljarðar króna að stærð, í umsýslu Frumtak Venture, og mun fjárfesta í nýsköpunar­fyrirtækjum sem eru á fyrstu stigum fjár­mögnunar og þykja vænleg til vaxtar á alþjóð­legum mörkuðum. Crowberry II er 11,5 milljarðar króna að stærð, í umsýslu Crowberry Capital, og mun fjárfesta í íslenskum og norrænum tækni-sprota­fyrirtækjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár