Ríkið hættir að niðurgreiða COVID-sýnatökur hjá einkaaðilum um næstu mánaðamót

Einka­aðilar hafa getað fengið fjögur þúsund krónur greiddar fyrir hvert tekið hraðpróf frá því í september í fyrra. Reglugerð sem heimilar þetta verður felld úr gildi 1. apríl næst­komandi.

Heilbrigðis­ráðuneytið hefur tilkynnt að niður­greiðslum hins opinbera vegna sýnatöku hjá einka­aðilum, sem er ætlað að greina hvort fólk sé smitað af COVID-19, verði hætt þann 1. apríl næst­komandi.

Einkenna­sýnatöku verður áfram sinnt hjá heilsu­gæslu og heilbrigðis­stofnunum án gjaldtöku og áfram verður rukkað sjö þúsund krónur fyrir svokallað PCR próf fyrir einkenna­lausa einstaklinga sem þurfa vottorð til ferðalaga.

Reglugerð um endur­greiðslur kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á COVID-19 tók gildi 16. september í fyrra og fól í sér að einka­aðilar sem önnuðust hraðpróf til greiningar á COVID-19, t.d. vegna hrað­prófs­viðburða eða útgáfu vottorða fyrir ferðamenn, gátu boðið þá þjónustu endurgjalds­laust. Samkvæmt henni fengi einka­aðilar fjögur þúsund krónur úr ríkis­sjóði fyrir hvert hraðpróf sem þeir framkvæmdu.

Kjarninn greindi frá því í byrjun desember í fyrra að þrjú einka­fyr­ir­tæki upp­fylltu þá skil­yrði reglu­gerðar heil­brigð­is­ráð­herra til greiðslna frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands fyrir töku hrað­prófa.

Heildar­kostnaður ríkisins vegna sýnatöku til greiningar á COVID-19 frá því að kórónu­veiru­faraldurinn hófst nemur 11,4 milljörðum króna. Þetta kom fram í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðis­ráðherra við fyrir­spurn Njáls Trausta Friðberts­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokks, sem birt var á vef Alþingis í gær.

Þar kom einnig fram að saman­tekinn kostnaður ríkis­sjóðs vegna sýnatöku­pinna hafi verið 369 krónur fyrir hvert PCR-próf að meðaltali og að kostnaður fyrir hvert hraðpróf hafi verið 1.685 krónur að meðaltali. Þá er heildar­kostnaður hingað til vegna sýnatöku­pinna 615 milljónir króna fyrir PCR-próf og 389 milljónir króna fyrir hraðpróf. Um er að ræða próf sem gerð voru á heilsu­gæslum, heilbrigðis­stofnunum og af einka­aðilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár