Repúblikanar snúa baki við Trump á ögurstundu

Nokkrir þingmenn Repúblikana­flokksins eru byrjaðir að draga í land með stuðning sinn við Donald Trump nú þegar innan við tvær vikur eru til kosninga. Bandarískir fjöl­miðlar fullyrða að skelfing hafi gripið um sig í herbúðum Repúblikana sem óttist að fara niður með sökkvandi skipi ef Trump bíður lægri hlut fyrir Joe Biden, líkt og skoðana­kannanir sýna að mestar líkur séu á. „Ég er ekki hræddur, ég er reiður,“ segir Trump sjálfur.

Síðustu vikur hefur smám saman farið að bera á því að þingmenn Repúblikana­flokksins, sem hafa staðið nánast sem einn maður að baki forsetanum allt kjör­tímabilið, viðri opinber­lega gagnrýni á störf Trumps. Var hann gagn­rýndur af samflokksmönnum sínum fyrir að ætla að verja meira en tveimur trilljónum Bandaríkja­dala til að örva hagkerfið á tímum COVID. Efnahags­lega íhalds­sömum Repúblikönum blöskruðu útgjöldin og efuðust um að þau myndu skila tilætluðum árangri. 

Meðal þeirra er Ron Johnson, þingmaður Wisconsin, sem sagðist í nýlegu viðtali við frétta­stöðina CNN hafa þungar áhyggjur af því að forsetinn hunsaði skulda­stöðu ríkis­sjóðs og gerði ekkert til að draga úr útgjöldum. Ríkis­sjóður Banda­ríkjanna hefur ekki verið jafn skuld­settur frá lokum seinni heims­styrjaldar. „Ég kem úr Teboðs­hreyfingunni og við höfum áhyggjur af stöðunni,“ sagði Johnson í viðtalinu og var þar að vísa til hreyfingar innan Repúblikana­flokksins sem barðist gegn skulda­söfnun ríkis­sjóðs á valdatíð Demó­kratans Barack Obama.

„Teboðs­hreyfingin er kannski …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár