Flóðin með þeim stærstu sem fallið hafa á varnargarða í heiminum

Út frá tiltækum upplýsingum Veður­stofu Íslands er áætlað að Skolla­hvilftar­flóðið sem féll á Flateyri á þriðjudags­kvöld kunni að vera sambærilegt að stærð við flóðið sem féll í október 1995.

Horft niður með eystri leiðigarðinum yfir farveg snjóflóðsins úr Skollahvilft sem rann út höfnina við Flateyri. Sjá má hvernig flóðið hefur brotið gróður þegar það streymdi með garðinum. Ummerki um skriðstefnu flóðsins meðfram toppi garðsins má sjá í snjó
Horft niður með eystri leiði­garð­inum yfir far­veg snjó­flóðs­ins úr Skolla­hvilft sem rann út höfn­ina við Flateyri. Sjá má hvernig flóðið hefur brotið gróður þegar það streymdi með garð­inum. Ummerki um skrið­stefnu flóðs­ins með­fram toppi garðs­ins má sjá í snjó Mynd: Veðurstofan/Óliver Hilmarsson

Snjó­flóðin sem féllu á Flateyri á þriðjudags­kvöld flæddu yfir leiði­garðana (varnar­garða) ofan Flateyrar á löngum köflum. Mikinn flóðsnjó er að finna á milli garðanna ofan þver­garðsins sem myndar tengingu á milli þeirra skammt ofan byggðarinnar.

Neðan þver­garðsins eru flóð­tungur innan við báða leiði­garðana sem hafa bæði kastast yfir þá og einnig að einhverju leyti flætt yfir þver­garðinn. Það var flóð­tungan innan við leiði­garðinn undir Innra-Bæjargili sem lenti á húsinu að Ólafstúni 14. Unglings­stúlka grófst í flóðið en var bjargað um hálftíma síðar.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt á frum­niðurstöðum mælinga Veður­stofu Íslands á snjó­flóðunum. Snjó­athugunar­menn og sérfræðingar Veður­stofunnar hafa í gær og dag unnið við mælingar.

Á 200 km hraða á klukkustund

Í samantekt Veður­stofunnar segir að flóðin virðast hafa kastast yfir garðana á tals­verðri ferð vegna þess að ofarlega á innri hlið varnar­garðanna er óhreyfður snjór sem flóðin hafa ekki sópað með sér en neðar hafa þau streymt með jörðu og brotið gróður og eyðilagt skilti og önnur mannvirki sem þar var að finna. Skolla­hvilftar­flóðið rann alveg yfir svæðið á milli garðanna og upp að Innra-Bæjargils­garðinum að innan­verðu.

Flóðin eru tiltölu­lega þunn á svæðinu milli garðanna og neðan þver­garðsins, víðast 0,5–1 metri að þykkt. Meðfram görðunum að utanverðu eru þykkar hrannir af flóðsnjó sem eru víða margir metrar þykkt og er þar að sjá háa óreglu­lega hryggi þar sem þykkt flóðsins er mjög mikil.

Svokallaður Doppler-radar á Skollahviltargarðinu mældi hraða flóðsins úr hvilftinni skömmu áður en það kom að garðinum ofanvert við miðju og reyndist það þar á 45–60 m/s hraða sem samsvarar 150–200 km hraða á klukku­stund.

Mikilsverðar upplýsingar

Flóðin úr Skolla­hvilft og Innra-Bæjargili eru með allra stærstu snjó­flóðum sem fallið hafa á leiði­garða í heiminum og gefa mikils­verðar upplýsingar um streymi snjóflóða sem lenda á fyrir­stöðum og virkni leiði­garða, segir í samantekt Veður­stofunnar.

Mælingar á rúmmáli flóðanna liggja ekki fyrir en út frá tiltækum upplýsingum er áætlað að Skolla­hvilftar­flóðið kunni að vera sambærileg að stærð við flóðið sem féll úr Skolla­hvilft í október 1995. Flóðið úr Innra-Bæjargili var mun minna að rúmmáli enda upptaka­svæði þess minna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár