Mótmælaalda í Bandaríkjunum getur af sér goðsagnakennda fréttaljósmynd

„Svört líf skipta máli“ er yfir­skrift mótmæla sem blásið hefur verið til víða í Banda­ríkjunum undan­farna daga og vikur.

Leshia Evans.
Leshia Evans. Mynd sem þykir tákn­ræn fyrir yfir­stand­andi bar­áttu svartra fyrir rétt­læti. Mynd: Reuters

Yfir 200 hafa verið hand­teknir í mótmælum sem sprottið hafa upp um gervöll Banda­ríkin, þar sem ofbeldi lögreglunnar gegn svörtu fólki er andmælt. Hefur myllu­merkið [e. hashtag] #blacklivesmatter, eða „svört líf skipta máli“ orðið gríðar­lega áberandi á samfélags­miðlum og er nú eins konar yfir­skrift mótmælanna. Yfirvöld halda því fram að maðurinn sem myrti fimm lögreglu­þjóna í friðsömum mótmælum í Dallas í síðustu viku hafi haft uppi áform um sprengju­árásir.

Á sunnu­daginn voru tugir mótmælenda hand­teknir í Baton Rouge í Louisiana fylki í Suður­ríkjunum, en svartur maður, Alton Sterling, var tekinn af lífi af tveimur hvítum lögreglu­þjónum síðastliðinn fimmtudag. Myndbands­upptaka náðist þar sem sjá má lögreglu­mennina halda Sterling niðri og skjóta hann. Mikil spenna hefur verið undan­farin misseri á vegna ítrekaðra tilefnis­lausra drápa lögreglunnar á svörtu fólki og hervæðingar bandarísku lögreglunnar.

Ljósmynd sem tekin var við mótmælin í Baton Rouge sýnir unga konu í kjól standa yfir­vegaða fyrir framan tvo lögreglu­þjóna sem nálgast hana í fullum herskrúða. Þegar Shaun King, frétta­maður New York Daily News deildi myndinni þóttu ein ummæli bera af:

Jami West: „Horfið á líkams­stöðuna. Hún er í jafnvægi, voldug, hnarreist og jarðtengd með báða fæturnar á jörðinni. Horfið á línuna sem verður til frá hvirflinum á höfði hennar niður í hælana. Eina verndin er hennar eigin persónu­legi kraftur.

Akkúrat öfugt við lögreglu­þjónana, sem eru færanlegir, tíma­bundnir, verndaðir af öllum sínum útbúnaði sem verður fjar­lægður þegar þeir ljúka sinni vakt. Þeim hefur verið þrýst aftur á hælana, misst allt jafnvægi og virðast vera að detta aftur fyrir sig, allt vegna kraftsins sem kemur frá henni.

Þetta er goðsagnar­kennd mynd. Héðan í frá mun hún rata í sögu- og lista­bækurnar.“

Ummælin.
Ummælin. Jami segir hug sinn.

Konan á myndinni heitir Leshia Evans og er hjúkrunar­fræðingur. Var hún hand­tekinn og sat eina nótt í fanga­klefa. Eftir að henni var sleppt þakkaði hún guði og sagðist ánægð að vera á lífi og ómeidd, og að enginn hefði látist í mómælunum.

Barack Obama, Bandaríkja­forseti, varaði mótmælendur við því að stimpla alla lögreglu­þjóna sem andstæðinga svartra: „Ef við setjum lögregluna alla undir sama hatt án þess að viðurkenna að stærsti hluti lögreglu­þjóna er að vinna mjög gott starf, þá munum við missa stuðnings­menn okkar í barátt­unni fyrir réttar­bótum.“ Obama mun á þriðjudag ferðast til Dallas þar sem hann ávarpar minningar­athöfn vegna atburða síðustu viku, og reynir að lægja ófriðar­öldurnar sem brjóta nú á landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár