Ráðuneytið hefur enn ekki afhent Alþingi umbeðin gögn um uppreist æru kynferðisbrotamanna

Dómsmála­ráðuneytið hefur enn ekki orðið við beiðni stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis um að afhenda nefndinni öll gögn í málum Róberts Downey og Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, kynferðis­brotamanna sem fengu uppreist æru í fyrra.

Dómsmála­ráðuneytið hefur enn ekki orðið við beiðni stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis um að afhenda nefndinni öll gögn í málum Róberts Downey og Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, kynferðis­brotamanna sem fengu uppreist æru í fyrra. 

Upplýsinga­beiðnin var send þann 20. október síðastliðinn á grund­velli 51. gr. þing­skaparlaga. Samkvæmt ákvæðinu ber stjórn­valdi að verða við beiðni fasta­nefndar á Alþingi „eins skjótt og unnt er og eigi síðar en sjö dögum frá móttöku beiðninnar“. Enn hefur ekkert svar borist þótt liðnir séu 16 virkir dagar síðan beiðnin var send.

Farið var fram á öll gögn, minnis­blöð og önnur skjöl sem tilgreind eru á lista yfir málsgögn í málum Róberts Downey, Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar og mannsins sem dró umsókn sína um uppreist æru til baka eftir að dómsmála­ráðherra hafði látið málið liggja óafgreitt um nokkurra vikna skeið.

Jafnframt var farið fram á öll tiltök gögn er varða ákvörðun dómsmála­ráðherra um að veita ekki fleiri einstaklingum uppreist æru og öll gögn um ákvörðun dómsmála­ráðherra um að hefja endur­skoðun á lögum um uppreist æru.

Loks var óskað eftir rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun ráðherra að fylgja ekki reglum um skráningu samskipta í Stjórnar­ráði Íslands nr. 320/2016 þegar hún upplýsti Bjarna Benediktsson símleiðis um meðmæli föður hans fyrir kynferðis­brota­manninn Hjalta Sigurjón Hauksson. 

„Ég er gáttuð á því að ráðuneytið skuli ekki afhenda þing­nefndinni umbeðin gögn. Þetta er til marks um að leyndar­hyggja sé enn við lýði í dómsmála­ráðuneytinu þrátt fyrir að fráfar­andi ríkis­stjórn hafi verið felld í kosningum og nýtt Alþingi sé að taka við,“ segir Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, í samtali við Stundina.

Beiðnin var send að frumkvæði hennar með stuðningi Svandísar Svavars­dóttur, þingkonu Vinstri grænna, og Jóns Þórs Ólafs­sonar, þingmanns Pírata. „Auðvitað er það áhyggju­efni ef dómsmála­ráðuneytið telur sér ekki skylt að fylgja lögum og fer í kringum þau í aðdrag­anda kosninga og meðan stjórnar­myndunar­viðræður standa yfir,“ segir Þórhildur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár