Telur ekkert að því að sitjandi dómarar sæki um laust embætti við Landsrétt

Þegar skip­aður dóm­ari við Lands­rétt má sækja um aðra stöðu við rétt­inn að mati dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Hann verður þó að segja af sér fyrri stöð­unni áður en hann tekur við þeirri nýju, enda verði „sami maður ekki skip­aður tvisvar í sama emb­ættið.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur sér­stak­lega tekið það til athug­unar hvort að það sé lög­legt að sitj­andi dóm­arar við Lands­rétt sæk­ist eftir því að fá nýja skipun við rétt­inn. Nið­ur­staða þeirrar athug­unar hafi verið sú að ekk­ert standi í vegi fyrir því.

Verði það hins vegar nið­ur­staða dóms­mála­ráð­herra, að feng­inni umsögn dóm­nefndar, að skipa þegar skip­aðan dóm­ara í Lands­rétt þá verður það þó ekki gert „nema við­kom­andi óski áður eftir og fái lausn frá því emb­ætti sem hann hefur nú þegar skipun til, enda verður sami maður ekki skip­aður tvisvar í sama emb­ættið.“

Þetta kemur fram í svar­bréfi ráðu­neyt­is­ins til Ástráðs Har­alds­sonar hér­aðs­dóm­ara, sem er einn fjög­urra umsækj­enda um nýlega aug­lýsta stöðu við Lands­rétt. Tveir hinna umsækj­end­anna, Ásmundur Helgason og Ragn­heiður Braga­dóttir, eru bæði þegar dóm­arar við Lands­rétt.

Kjarninn hefur kallað eftir upp­lýs­ingum um hvort að utan­að­kom­andi álit hafi verið unnin fyrir dóms­mála­ráðu­neytið um þessa stöðu, og ef svo er að fá þau afhent. Svar við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur ekki borist.

Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­­nefndar um skipun fimmtán dóm­­­­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­ustu, þar með talin bæði Ásmund og Ragn­heiði, og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra.

Telur umsókn sitjandi dómara ekki standast lög

Ástráður var einn þeirra fjög­urra sem var met­inn á meðal 15 hæf­ustu af dóm­nefnd þegar upp­haf­lega var skipað í Lands­rétt, en varð af dóm­ara­sæti þegar Sigríður ákvað að breyta list­anum.

Hann sendi Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra bréf í síð­ustu viku, í kjöl­far þess að gert var opin­bert að hann hefði sótt um lausa stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara, þar sem hann sagð­ist áskilja sér allan rétt til að láta á það reyna fyrir dóm­stólum ef þegar skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt verði skip­aðir í lausa stöðu við rétt­inn.

Í bréf­inu kom fram að Ástráður teldi aug­ljósa hættu á því að ef umsókn skip­aðs Lands­rétt­ar­dóm­ara sé talin gild og myndi svo leiða til nýrrar skip­unar umsækj­and­ans í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara gætu þeir sem svo kysu látið á það reyna hvort slík skipun teld­ist lög­mæt.

Með slíkri skipan væri í raun verið að gera til­raun til að lög­helga eftir á skipun dóm­ara sem þegar hefði verið metin ólög­mæt. „Ég tel tals­verðar líkur á að nið­ur­staða dóm­stóla yrði sú að slík skipan stæð­ist ekki. Það væri, svo vægt sé til orða tek­ið, í ljósi for­sög­unn­ar, afar óheppi­legt bæði fyrir dóms­kerfið og umsækj­and­ann ef það yrði nið­ur­stað­an. Slíkur fram­gangur væri auk þess til þess fall­inn að draga á lang­inn ríkj­andi réttaró­vissu um fram­tíð­ar­skipan Lands­réttar og fæli í sér afar sér­kenni­leg skila­boð inn í yfir­stand­andi mála­rekstur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu. Ég tel raunar að Lands­réttur megi illa við frek­ari slíkum skakka­föll­u­m.“

Ekki leyst með stóla­ball­ett

Ást­ráður rakti í bréfi sínu í síð­ustu viku að svipuð staða hefði komið upp í maí 2019, þegar staða Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar við Lands­rétt var aug­lýst laus til umsókn­ar, í kjöl­far þess að hann til­kynnti um hann ætl­aði að setj­ast í helgan stein. Þá hafi afstaða dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins verið sú að það að umsækj­andi væri skip­aður Lands­rétt­ar­dóm­ari stæði ekki í vegi fyrir því að sá sami gæti sótt um emb­ætt­ið. „Þessa nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins frá í maí 2019 tel ég ber­sýni­lega ranga. Það er mín afstaða að ekki stand­ist að Lands­rétt­ar­dóm­ari sem skip­aður er ótíma­bundið í emb­ætti geti án þess að segja fyrst af sér emb­ætt­inu sótt um laust emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara. Ég tel raunar að þessi nið­ur­staða sé svo aug­ljós af eðl­is­rökum að varla ætti að vefj­ast fyrir nokkrum manni. Eng­inn getur sótt um emb­ætti sem þegar gegnir því emb­ætt­i.“

Ást­ráður rekur það að til­gangur þess að aug­lýsa laust emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara nú væri sá að manna lausa stöðu sem losn­aði vegna þess að Ing­veldur Ein­ars­dóttir var skipuð dóm­ari við Hæsta­rétt í des­em­ber síð­ast­liðn­um, en hún var áður dóm­ari við Lands­rétt. „Þessum til­gangi verður aug­ljós­lega ekki náð með því að færa til mann úr einu emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara í ann­að. Sá vandi sem ólög­mæt emb­ætt­is­færsla dóms­mála­ráð­herra sum­arið 2017 skóp dóms­kerf­inu og þeim ein­stak­lingum sem ekki hafa getað gegnt störfum Lands­rétt­ar­dóm­ara síðan í mars 2019 verður ekki leystur með slíkum stóla­ball­ett eða hnísu­stökki. Væri sú afstaða um gildi umsóknar sem ráðu­neytið tók í maí 2019 almennt lögð til grund­vallar væri ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að til að mynda dóm­arar Hæsta­réttar sæktu sjálfir um hverja þá stöðu sem að aug­lýst yrði við rétt­inn. Þeir myndu að lík­indum telj­ast meðal hæf­ustu umsækj­enda og gætu með þessum ef þeim bið svo við að horfa, komið í veg fyrir að unnt yrði að skipa nýja dóm­ara meðan þeim sjálfum ent­ist emb­ætt­is­ald­ur. Aug­ljóst er að slík enda­leysa stenst ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár