Fjórir sóttu um embætti dómara við Landsrétt – Tveir eru þegar dómarar

Af þeim fjórum sem sóttu um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, sem var aug­lýst laust til umsóknar í byrjun árs, eru tveir þegar dóm­arar við rétt­inn. Hvorugt þeirra er þó starf­andi vegna þess að þau voru ólög­lega skipuð.

Alls sóttu fjórir um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem var aug­lýst laust til umsóknar 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Umsókn­ar­frestur var til síð­asta mánu­dags, 20. jan­úar. Skipað verður í emb­ættið hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hefur lokið störfum. 

Umsækj­endur um emb­ættið eru Ásmundur Helgason, dóm­ari við Lands­rétt, Ragn­heiður Braga­dóttir, dóm­ari við Lands­rétt, Sandra Bald­vins­dóttir hér­aðs­dóm­ari og Ástráður Har­alds­son hér­aðs­dóm­ari.

Um er að ræða stöðu við Lands­rétt sem losn­aði þegar Ing­veldur Ein­ars­dóttir var skipuð dóm­ari við Hæsta­rétt í des­em­ber.

Alls voru 15 dóm­arar upp­haf­lega skip­aðir í Lands­rétt. Hæf­is­nefnd 15 umsækj­endur hæf­asta til að setj­ast í þau emb­ætti. Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­þykkti svo lista Sig­ríð­ar. Þeir fjórir sem hæf­is­nefndin taldi ekki á meðal hæf­ustu umsækj­enda, en Sigríður bætti við á list­ann á kostnað ann­arra, voru Ragn­heiður og Ásmundur Helga­­­son auk Arn­­­fríðar Ein­­­ar­s­dótt­ur ogJóns Finn­­­björns­­­sonar.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirri nið­ur­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­ar­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

[adspot]Einn þeirra ell­efu sem voru lög­lega skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, sagði starfi sínu lausu í fyrra­vor og greindi frá því að hann hygð­ist setj­ast í helgan stein.

Staða hans var aug­lýst og umsókn­ar­frestur rann út síðla í maí 2019. Alls sóttu þá átta um stöð­una, þar af tveir sitj­andi dóm­arar í Lands­rétti, Ásmundur og Ragn­heiður. Þau eru bæði á meðal þeirra fjög­­urra lands­rétt­­ar­­dóm­­ara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að nið­­ur­­staða Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu í Lands­rétt­­ar­­mál­inu var birt. Málinu var skotið til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og mál­flutn­ingur fyrir honum fer fram í næsta mán­uði.

Eiríkur Jónsson, þá laga­pró­fessor við Háskóla Íslands og einn þeirra sem Sigríður hafði ákveðið að skipa ekki þrátt fyrir að hæf­is­nefnd hefði metið hann sjö­unda hæf­astan allra umsækj­enda í upp­runa­lega skip­un­ar­ferl­inu, var þá skip­aður í emb­ættið.

Ásmundur og Ragn­heiður eru bæði aftur á meðal umsækj­enda nú, þrátt fyrir að vera þegar skip­aðir dóm­arar við rétt­inn en mega ekki starfa þar vegna þess að upp­haf­leg skipun þeirra var ólög­mæt. Þrátt fyrir að hafa ekki dæmt í málum í nálægt ár eru allir fjórir dóm­ar­arnir sem fóru í leyfi.

Þann 20. des­em­ber 2019 aug­lýsti dóms­mála­ráðu­neytið laus til setn­ingar tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt og rann umsókn­ar­frestur út þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að sett verði í emb­ættin hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hafi lokið störf­um.

Um er að ræða emb­ætti þeirra Ásmundar og Jóns Finn­björns­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár