Segir brotið á réttindum drengsins: „Og við tölum um mannréttindabrot á pólskum konum“

Ragn­heiður Ríkharðs­dóttir skorar á innan­ríkis­ráðherra að beita sér í máli fimm ára drengsins sem á að senda til Noregs. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að það væri af nógu að taka ef þingmenn ætluðu að „gagnrýna mann­réttinda­brot í Evrópu í hvert skipti sem þau eru framin“.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Ragn­heiður Ríkharðs­dóttir, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, gerðu mótmæla­bréf 34 Alþingis­manna til pólska þingsins vegna fyrir­hugaðrar laga­setningar um skilyrðis­laust bann við fóstur­eyðingum þar í landi að umtals­efni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. 

Eins og Stundin greindi frá í gær skrifaði fjöldi þingmanna Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins ekki undir bréfið, meðal annars forseti Alþingis og formenn stjórnar­flokkanna beggja. Guðlaugur Þór og Ragn­heiður Ríkharðs­dóttir voru einnig í þessum hópi, en Guðlaugur situr í stjórn samtak­anna AECR fyrir hönd Sjálfstæðis­flokksins ásamt fulltrúa frá Lögum og réttlæti, pólska stjórnar­flokknum sem stendur að hinni umdeildu laga­setningu um afnám undanþága frá banni við fóstur­eyðingum þar í landi. 

„Ef við ætlum hins vegar að gagnrýna mann­réttinda­brot í Evrópu í hvert skipti sem þau eru framin, þá er af nógu að taka, því miður,“ sagði Guðlaugur Þór á Alþingi í dag. en hann er oddviti á framboðs­lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi norður fyrir þing­kosningarnar sem fram fara í lok mánaðar.

Ragn­heiður Ríkharðs­dóttir, sem ekki gaf kost á sér til áfram­haldandi þingsetu, gerði mál 5 ára íslensks drengs að umtals­efni, en samkvæmt dómi Héraðs­dóms Reykja­víkur þarf amma hans að afhenda norsku barna­verndinni hann innan tveggja mánaða. Sagði Ragn­heiður að þingmenn töluðu um mann­réttinda­brot á pólskum konum og mann­réttinda­brot í Sýrlandi en hún sem móðir og amma gæti ekki sætt við að brotin væru mann­réttindi á umræddum dreng.

„Nú er í fréttum, virðu­legur forseti – og kann að vera að við sem lesum fréttirnar vitum ekki alla málavexti – en það er hins vegar nokkuð ljóst að akkúrat í þessum töluðu orðum er verið að brjóta mann­réttindi á litlum 5 ára dreng sem ákveðið hefur verið að senda til norskrar barna­verndar­nefndar vegna þess að móðir hans, ung kona, átti við áfengis­vandamál að stríða meðan hún bjó í Noregi.

Hún hóf meðferð og þegar ljóst var að taka ætti af henni barnið ákvað hún að koma til Íslands. Hún hefur haldið áfram sinni meðferð, hún hefur verið edrú, hún er virkur alkohólisti en hún hefur verið edrú í langan tíma, hún á hér fjöl­skyldu, en af því að hún var svipt forræði yfir drengnum sínum í Noregi – faðirinn býr í Danmörku og hefur engin afskipti af – þá á núna að taka þennan fimm ára dreng og flytja hann til Noregs, koma honum fyrir á fóstur­heimili á meðan að fjöl­skyldan hans hér á Íslandi og móðir hans eru að taka á sínum málum og vinna í því sem að henni snýr,“ sagði Ragn­heiður og bætti við:

„Þetta þýðir að þessi 5 ára drengur verður í 14 ár á fóstur­heimili í Noregi. Móðir hans fær að hitta hann tvisvar á ári undir eftirliti. Og við tölum um mann­réttinda­brot á pólskum konum og við tölum um mann­réttinda­brot á fólki í Sýrlandi. Virðu­legur forseti, fyrir mig sem þingmann, fyrir mig sem móður og ömmu, þá er þetta mann­réttinda­brot sem ég get ekki sætt mig við og ég skora á hæstvirtan innan­ríkis­ráðherra og Barna­verndar­stofu að ganga í málið nú þegar og koma í veg fyrir að þessi litli 5 ára drengur verði rifinn frá móður sinni og fjöl­skyldu hér á Íslandi og komið í fóstur í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynjólfs­dóttir reynir að bjarga húsinu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfirvöld að klára samkomulag landanna á milli varðandi framtíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyrirgert rétti sínum í Noregi með því skilyrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­verndar­yfirvöld vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyldunnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár