Einn ötulasti talsmaður útrásarinnar verður aftur ritstjóri Markaðarins

„Hann reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að aðrir blaðamenn en þeir sem störfuðu á Markaðnum skrifuðu um íslensk fyrirtæki og útrásina með rökum eins og þeim að gagnrýnin og aðgangs­hörð skrif gætu eyðilagt tengsl viðskipta­blaðsins við viðkomandi fyrirtæki og fleira í þeim dúr,“ skrifar fyrr­verandi samstarfs­maður Hafliða Helga­sonar.

Hafliði Helgason hefur verið ráðinn ritstjóri efnahags- og viðskipta­frétta hjá frétta­stofu 365. Þetta kemur fram í frétt á Vísi.is en Hafliði starfaði á Frétta­blaðinu frá 2001 til 2007 og var fyrsti ritstjóri Markaðarins, fylgirits Frétta­blaðsins um viðskipti. Mun hann nú aftur annast ritstjórn fylgi­ritsins líkt og hann gerði á útrásar­árunum en þá sætti hann gagnrýni fyrir þann mikla stuðning sem blaðið veitti íslensku fjármála­lífi.

Hafliði hætti á Frétta­blaðinu árið 2007 og tók til starfa hjá Reykjavik Energy Invest þar sem hann fékk að kaupa hlutabréf á vildar­kjörum fáeinum vikum eftir ráðninguna. Að því er fram kemur á Vísi.is hefur Hafliði unnið að ýmsum verkefnum tengdum fjár­festingum undan­farin ár, nú síðast sem sérfræðingur hjá Framtaks­sjóði Íslands frá árinu 2012. Hann er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og á að baki nám í blaða­mennsku í Svíþjóð og heimspeki við Háskóla Íslands.

Í bókinni Hamskiptin: Þegar allt varð falt á Íslandi eftir Inga Frey Vilhjálmsson, blaðamann á Frétta­tímanum, er rakið hvernig Hafliði gætti hagsmuna viðskipta­lífsins sem ritstjóri Markaðarins hjá 365 miðlum. „Ég starfaði á Frétta­blaðinu á þessum tíma og man vel eftir því hvernig hann reyndi ítrekað að koma í veg fyrir að aðrir blaðamenn en þeir sem störfuðu á Markaðnum skrifuðu um íslensk fyrirtæki og útrásina með rökum eins og þeim að gagnrýnin og aðgangs­hörð skrif gætu eyðilagt tengsl viðskipta­blaðsins við viðkomandi fyrirtæki og fleira í þeim dúr,“ segir í bókinni. „Þannig var reynt að koma í veg fyrir umfjöllun annarra blaða­manna um viðskipta­lífið með því að slá á puttana á þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár