Sigmundur uppsker stuðning og úthrópanir: „Lokaðu hurðinni almennilega á eftir þér“

Færsla Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, þar sem hann boðar kosningar ef Sjálfstæðis­flokkurinn styðji hann ekki áfram, vekur misjöfn viðbrögð.

Viðbrögð fólks við uppgjörs­færslu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar einkennast ýmist af ánægju, ótta og reiði. Sigmundur boðar að hann muni boða til kosninga ef Sjálfstæðis­flokkurinn styður hann ekki sem forsætis­ráðherra. Hann segist stoltur af verkum sínum og að hann muni halda áfram, hljóti hann stuðning til þess.

Forseti Íslands hefur hins vegar stoppað Sigmund Davíð af og synjað honum um heimild til að boða til kosninga.

„Lokaðu hurðinni almennilega á eftir þér. Viljum ekki trekk á eftir. Bless,“ segir Lilja Líndal Sigurðar­dóttir.

„Gangi þér vel. Þú mátt ekki bugast. Því ef það yðri kosið nú yrði ringul­reið. Klárum kjör­tímabilið og kjósum svo þannig virkar lýðræðið,“ segir Einar Magnússon.

„Það verður að klára málið og leiðrétta kjör aldraða og öryrkja,“ segir Sigrún Ellen Einars­dóttir, honum til stuðnings. „Gangi þér sem allra best og alls ekki segja upp þú ert sá eini sem hefur talað fyrir bænda­stéttina i sambandi við Haga og fleira ... það hafa allir sínar skoðanir á þessu máli mér finst bara að þetta sé rætt mál búið að gera grein fyrir þessu skattar borgaðir þá finst mer að þeir í þing­húsinu sem eru að kasta steinum ur glerhúsi megi aðeins hægja á og líta á sjálfan sig,“ segir Sylvia Magnúsdóttir.

„Stuðningsmannahópur þinn er miklu stærri en þig grunar“

Kári S. Lárusson, harður stuðnings­maður Sigmundar, sem vill leggja niður Ríkis­útvarpið þar sem það sé „verulega ógeðfelld stofnun“ þar sem „vinstri menn af verri sortinni [hafi] hreiðrað þar um sig eins og búrhænur í arfagarði og stunda þaðan heiftúðugar árásir á gott fólk sem skarar fram úr eða er til sóma fyrir land sitt og þjóð“, hvetur Sigmund áfram. 

„Sigmundur, - haltu þínu striki og hafðu engar áhyggjur af hávaða­fólki. Þú hefur staðið þig afburða vel í starfi fyrir land og þjóð. Atburðir síðustu daga hafa í engu breitt þeirri skoðun minni. Mér er slétt sama hvar þið hjónin geymið fjármuni ykkar og hef meira en fullan skilning á því að fólk hafi peninga sína ekki í íslenzkum bönkum. Þeir hafa ekki hagað sér með þeim hætti undan­farin áratug að nokkur minnsta ástæða sé til að eiga við þá viðskipti. Ég er flokks­bundinn Sjálfstæðis­maður og er verulega óánægður með minn gamla flokk. Þess vegna var það fagnaðar­efni þegar loksins kom forsætis­ráðherra til starfa sem hafði dug og þor til að láta til sín taka. Og þú mátt bóka það, að stuðnings­mannahópur þinn er miklu stærri en þig grunar. Og hafðu í huga, - að stundum er sókn bezta vörnin.“

„Er ekki lengur reiður út í þig“

„Gerðu þér og öðrum sóma og segðu upp,“ segir Guðlaugur Jónsson í vinsælustu ummælunum við færslu Sigmundar.

„Þú ert svo veruleika­fyrtur að maður er ekki lengur reiður út í þig, þvert á móti vorkenni ég þeirri persónu sem þú hefur að geyma! segir Sverrir Gauti Hilmarsson.

„Þegiðu,“ segir annar. Enn annar bendir á að árangur ríkis­stjórnarinnar sé óháður því hvort hann eigi að segja af sér eða ekki. „Sigmundur, burt séð því hvernig þessi ríkis­stjórn hefur staðið sig og hvaða góðu málum hún vill koma í gegn: Drullaðu þér.“

„Vík burt Satan !!!!“ hrópar Páll Helmut Guðjónsson.

Ester Bibi heldur því fram að Sigmundur hafi lítið efnt af loforðum sínum. „Flest kosninga­loforð, sem þú varst kosinn út á, komust nákvæmlega ekkert áleiðis. Þar má nefna stóra verð­tryggingar­málið sem beið þess að vera tekið fyrir á þingi í óratíma og þegar það mál var loksins tekið fyrir (að frumkvæði stjórnar­andstöðu) fórst þú fram og tókst ekki þátt! Ég vil biðja þig eins vinsam­lega og ég á til að segja af þér. Þú hefur svikið alla þjóðina en mest þína eigin kjósendur!“

Sigmundur hlýðir á vantraust
Sigmundur hlýðir á vantraust Í gær mættu yfir 20 þúsund manns á mótmæli gegn skatta­skjóls­málsins og hlustaði Sigmundur á umræður þingmanna um vantraust.

Hefði átt að gera þetta fyrr

Vilhjálmur Ingi Sigurðarson bendir á að Sigmundur hefði átt að grípa fyrr til heiðarlegrar umræðu: „Þetta hefðirðu mátt gera fyrir löngu að tjá þig svona heiðar­lega um málið. Held bara að það sé of seint fyrir þig að ávinna þér traust gagnvart almenning sem hefur látið heldur betur í sér heyra og er óánægt. Ykkur í ríkis­stjórninni hefur tekist margt gott og unnið vel í mörgum málum en heiðar­leiki og hreinskilni er það sem þjóðin vill og krefst af stjórn­málamönnum eftir hrun. Þú hefur því miður leynt upplýsingum og ekki komið hreint fram og fólki svíður það. Sýndu þá drengskap og segðu af þér sem forsætis­ráðherra.. Má ég svo biðja fólk um að sýna kurteisi og aðgát í nærveru sálar. Þið mynduð örugglega ekki sýna þessa hegðun við hann face 2 face. Kurteisi kostar ekkert...“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár