Auglýsingamódel Facebook og Instagram fær þungt högg í Evrópu

Tækni­risinn Meta hefur verið sektaður um jafnvirði hátt í 60 milljarða króna og virðist tilneyddur til að breyta því hvernig auglýsingum er beint að notendum Facebook og Instagram í Evrópu, í kjölfar úrskurðar írskra persónu­verndar­yfirvalda.

Mark Zuckerberg er forstjóri Meta, sem á bæði Facebook og Instagram.
Mark Zuckerberg er for­stjóri Meta, sem á bæði Facebook og Instagram. Mynd: EPA

Tækni­fyrirtækið Meta, sem á samfélags­miðlana Facebook og Instagram, fékk þungt högg á miðvikudag. Þá kváðu írsk persónu­verndar­yfirvöld upp úrskurð um að sú leið sem fyrir­tækið fer til þess að safna gögnum um notendur svo hægt sé að sérsníða að þeim auglýsingar sé í andstöðu við evrópsku persónu­verndar­reglu­gerðina, G.D.P.R.

Írska persónu­verndar­stjórn­valdið fer með málefni Meta fyrir hönd Evrópu­sambandsins, sökum þess að bækistöðvar félagsins á evrópskum markaði eru í Dublin. Niður­staðan varð sú að Meta hefði þvingað notendur til þess að samþykkja að þeim yrðu sýndar sérsniðnar auglýsingar, með því að hafa það samþykki með öðrum notkunar­skilmálum bæði Facebook og Instagram og að það mætti ekki, persónu­verndar­reglu­gerðinni samkvæmt.

Sekt að upphæð 390 milljónum evra fylgdi ákvörðun írska yfir­valdsins, sem jafn­gildir rúmum 59,5 milljörðum íslenskra króna og eru Meta nú gefnir þrír mánuðir til þess að setja fram áætlun um hvernig fyrir­tækið hyggst hlíta niður­stöðunni.

Mögulega verður niður­staðan sú að Meta geri notendum samfélags­miðla sinna mögulegt að sveigja hjá því að gögn sem safnast þegar þeir skrolla og klikka sig í gegnum miðlana verði notuð til þess að beina til þeirra auglýsingum.

New York Times fjallaði um málið í gær og í frétt miðilsins kom fram að niður­staðan í málinu á Írlandi gæti samkvæmt greinanda á fjármála­markaði stefnt um 5 til 7 prósentum allra tekna Meta af auglýsingum í hættu. Það er engin smá summa, en Meta var með 118 milljarða bandaríkja­dala, jafnvirði 17 þúsund milljarða íslenskra króna, í tekjur árið 2021.

Stutt er síðan að auglýsinga­módel Meta fékk annan skell, er Apple ákvað á árinu 2021 að byrja að leyfa öllum eigendum iPhone-síma að velja hvort auglýsendur gætu nýtt sér gögn um síma­notkun þeirra. Á síðasta ári sagði Meta að þessi breyting Apple hefði kostað félagið um 10 milljarða dala (um 1.450 milljarða íslenskra króna).

Meta hefur brugðist við ákvörðun írska stjórn­valdsins. Segir fyrir­tækið niður­stöðuna vera vonbrigði og að Meta hafi talið að þeirra nálgun á gagna­söfnun vegna sérsniðinna auglýsinga hefði virt evrópsku persónu­verndar­reglu­gerðina.

Írsk yfirvöld höfðu áður komist að þeirri niður­stöðu að sú leið sem Meta fer, að hengja samþykki notenda fyrir gagna­söfnuninni inn í aðra notenda­skilmála samfélags­miðla sinna, væri í samræmi við persónu­verndar­reglu­gerðina, en nefnd um túlkun reglugerðarinnnr sem fulltrúar annarra Evrópu­sambands­ríkja skipa komst að annarri niður­stöðu.

Íslendingar gætu orðið varið við breytingar

Enn á eftir að koma í ljós hvernig Meta bregst við niður­stöðunni, en ljóst er að íslenskir notendur samfélags­miðla á borð við Facebook og Instagram gætu orðið varir við einhverjar breytingar ef af þeim verður, enda hefur evrópska persónu­verndar­reglugerðin verið innleidd á Íslandi.

Meta er risastór auglýsinga­miðill á íslenskum markaði, en eins og Kjarninn sagði frá í desember rann næstum önnur hver króna sem varið var til birt­ingu aug­lýs­inga á Íslandi árið 2021 til erlendra aðila, eða 9,5 af alls 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á því ári.

Saman­lagður hlutur Facebook og Google í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár