Ferð án fyrirheits: Flokkurinn sem boðaði nýja og breytta pólitík endar ferð sína í hægri stjórn

Björt framtíð var stofnuð til að innleiða breytt stjórnmál. Eftir uppgjör var hann yfir­tekinn af Besta flokks armi flokksins og einum stofn­andanum bolað burt. Karl Th. Birgisson skrifar um sögu umbóta­flokksins sem varð hluti af einni mestu hægri stjórn sögunnar.

Bandalagið
Banda­lagið Benedikt Jóhann­es­son í Viðreisn og Óttarr Proppé í Bjartri fram­tíð tóku höndum saman eftir kosn­ingar um myndun rík­is­stjórnar. Mynd: Pressphotos

Eftir þing­kosningar vorið 2009 var Guðmundur Steingrímsson alþingis­maður í svolítið sérkennilegri stöðu.

Hann hafði verið vara­þingmaður Samfylkingarinnar kjör­tímabilið 2007–2009. Líka aðstoðar­maður borgar­stjóra og aldavinar síns, Dags B. Eggerts­sonar, í skraut­legu meirihluta­samstarfi í Reykjavík.

Sá síðarnefndi hafði raunar líka skrifað ævisögu Steingríms Hermanns­sonar, föður Guðmundar.

Sem vara­þingmaður Samfylkingarinnar hafði Guðmundur haft lítið að gera. Eiginlega ekki neitt, fyrir utan fjóra daga haustið 2007.

Þangað til. Þangað til. Og þá var það ekkert smá.

Guðmundur settist nefnilega á þing í fjarveru Katrínar Júlíusdóttur 6. október 2008, daginn sem Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland. Á þingi var hann í tvær vikur, þær hinar sömu og hér fór allt fjandans til, Lands­bankinn féll, sett voru neyðarlög, Bretar virkjuðu gegn Íslendingum hryðjuverkalög, Kaupþing féll og krónan var lögð inn á gjörgæzludeild, svo aðeins fátt sé nefnt um þessa atburða- og örlaga­ríku daga.

Óhætt er að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár