Olíuverð tekur nýjan kipp eftir árásir Húta

Olíuverð hækkar og hlutabréf lækka á heimsvísu vegna vaxandi átaka í Mið-Austur­löndum, ótta við útbreiðslu stríðs og mögulegan hernað Banda­ríkjanna, sem eykur verðbólgu­ótta og óvissu á mörkuðum.

Rauðar tölur
Rauðar tölur Hluta­bréfa­mark­aðir lækk­uðu víða og olíu­verð tók kipp upp á við í morgun. Mynd: Kazuhiro NOGI / AFP

Olíuverð hækkaði og flest hlutabréf lækkuðu í morgun þegar ástandið í Mið-Austur­löndum magnaðist enn á ný með aðkomu Húta-uppreisnar­manna að stríðinu við Íran og fjár­festar óttuðust í auknum mæli að Banda­ríkin myndu hefja land­hernað.

Þegar átökin gengu inn í sína fimmtu viku jókst óttinn við að þau myndu breiðast út þegar Húta-uppreisnar­menn í Jemen sögðust á laugardag hafa skotið „flugskeyta- og drónahríð“ á hernaðar­lega mikilvæg skotmörk í Ísrael.

Árásirnar vöktu áhyggjur af því að stríðið myndi breiðast út til Rauða­hafsins, en Sádi-Arabía hefur beint stórum hluta olíu­útflutnings síns þangað til að forðast Hormús­sund, en um 20 prósent af hráolíu og gasi fara þar um og hafa stjórn­völd í Teheran í raun lokað því.

Fréttirnar urðu til þess að olíuverð náði í morgun sínu hæsta stigi frá því fyrr í mánuðinum eftir að Banda­ríkin og Ísrael hófu herferð sína gegn Íran. Brent-olía nálgaðist 117 dollara á tunnu áður …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár