Samtvinnuð örlög kynslóða

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Auður og Auður, sýningu eftir Auði Jóns­dóttur sem sýnd er í Landnáms­setrinu.

Auður Jónsdóttir og Auður Laxness.
Auður Jóns­dóttir og Auður Laxness. Mynd: Landnámssetrið.

Landnámssetur: Auður og Auður

Höfundur og sögumaður: Auður Jóns­dóttir

Auður Jóns­dóttir hefur ákaflega þægilega og viðkunnanlega nærveru. Hún birtist líkt og huldukona á Sögu­loftinu í Landnáms­setri eftir að áhorf­endur/áheyrendur hafa fengið sér sæti, yfir hreyfingum hennar hvílir látleysi og hógværð, hún er hlédræg í framkomu og þegar hún hefur sögu sína fetar hún sig varlega inn í sögu­heiminn, leiðir okkur varfærnis­lega í upphafi ferðalags sem á eftir að reynast um tveggja klukku­stunda langt – en það má vera staðreyndin; í tilfinningunni er sögu­stundin eins og andartak. Eftir að Auður hefur náð tökum á áheyrenda­skaranum er eins og tíminn hverfi, sögu­heimur Auðar er eitt einasta hér og nú.

Það verður auðvitað ekki hjá því horft að fyrir hvern einasta Íslending sem man afa Auðar, nóbels­skáldið Halldór Laxness, eru sögu­persónurnar þekktar – hversu þekktar skal ósagt látið, því það er nú einu sinni þannig að það veldur hver á heldur þegar um opinberar persónur er að ræða. Þær hafa tilhneigingu til að vera býsna ólíkar sjálfum sér eftir því hver horfir og hver lýsir og Halldór Laxness og eiginkona hans seinni hluta ævinnar, afi og amma Auðar Jóns­dóttur eru engin undan­tekning á því. En hér, á Sögulofti Landnáms­seturs fáum við að kynnast afa og ömmu Auðar eins og hún þekkir þau, og þó einkum ömmu hennar, Auði, sem hún heitir eftir og sem hún sat hjá í eldhúsinu og átti samskipti við jafnt á barns­aldri sem á unglings­árum. Það er sú Auður amma sem mótaði barnið og unglinginn og það er þeirra sameiginlega saga sem sögð er undir heitinu „Auður og Auður“.

Að stofni til er frásögnin bók Auðar Jóns­dóttur, Ósjálfrátt, sem kom út 2012 og var tilnefnd til bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs. Ósjálfrátt er þroska­saga ungrar stúlku, Eyju, sem er heltekin af þeirri sannfæringu að hún eigi að skrifa; það er sú löngun eða þráhyggja sem rekur hana áfram og fleytir á milli skerja í sögu hennar. Í upphafi sögunnar finnur hún sig nýgifta tuttugu árum eldri drykk­felldum bóhem, sem hafði tjáð henni að án hennar gæti hann ekki lifað – og ekki vildi hún verða völd að dauða hans! Þau setjast að á Flateyri, heima­byggð hans, en þar höfðu skömmu áður fallið snjóflóð eina vetrar­nótt sem kostaði fjölda manns lífið og þorpið varð aldrei samt aftur. Stúlkan verður fyrir þrýstingi frá dugmiklum konum, skíða­drottningu og ömmu sinni, sem sjá að þetta hjónaband er dauðadæmt, þær hvetja Eyju til að skilja við mann­leysuna, og á endanum ákveður hún að fara til Svíþjóðar að skrifa bókina sem í henni blundar. Í Svíþjóð lendir hún í ýmsum ævintýrum með skíða­drottningunni og er sá hluti frásagnarinnar bæði kostulegur og bráð­fyndinn; og í Svíþjóð rekst hún á sögu ömmu sinnar í strætóskýli nálægt Sundsvall og hefst þá athyglis­vert og spennandi ferðalag sem gengur úr á að rannsaka hvernig æviskeið kynslóða geta runnið saman, endur­tekið sig, rímað og fléttast rétt eins og örlögin væru fyrirfram ráðin – eða hvað?

Það skal játað, að sá sem hér skrifar hefur ekki lesið Ósjálfrátt (úr því skal bætt hið snarasta!) en það kemur ekki að sök, frásögn Auðar er eins sjálfstæð og hægt er og hvergi háð bókinni. Það verður ljóst á frásögn Auðar á Sögu­loftinu að saga Eyju er saga hennar sjálfrar og nú stígur Auður skrefið til fulls og leiðir okkur í gegnum sjálfs­ævisöguna milli­liðalaust. Sú saga er í raun samtvinnuð úr örlögum hennar sjálfrar og ömmu hennar og stendur fyllilega undir sínu sem sjálfstæð og heil­steypt frásögn. Hún er þroska­saga Auðar rithöfundar.

Inn í þá sögu fléttast einnig minningar af nóbel­skáldinu, afanum og fyrir hvern þann sem er þó ekki sé nema pínulítið ‚starstruck‘, þá er svona ‚name-dropping‘ vel til þess fallinn að áheyrandi sperri eyrun; þetta er með þekktustu brögðum í bók góðra sögumanna og bregst aldrei. En hér er meiri dýpt í ‚frægranafnaslettunum‘ en venja er – það fræga fólk sem hér er nefnt til sögunnar eru áhrifa­valdar í sögu Auðar og hún afhjúpar hvernig þessi áhrif virka, hún er opin og hrein­skilin með það hvernig þetta fræga fólk, áhrifavaldarnir í lífi hennar, hafa líkt og góðir leið­sögumenn leitt hana sjálfa frá því að vera ráðvilltur unglingur sem hvað sem gáfum og góðri greind leið, tók stöðugt rangar ákvarðanir, yfir í að vera sá rithöfundur sem blundaði í brjósti hennar og tókst á endanum að brjótast út og blómstra.

Það er fremur erfitt að ímynda sér að Auður Jóns­dóttir, þessi lágvaxna kona með þennan blíðlynda svip, geti hafa verið vandræða­unglingur. En saga hennar er trúverðug og hún styður með nægilega mörgum fallegum, mannlegum dæmum að vandræða­unglingar eiga líka skilið að njóta skilnings og fá það svigrúm sem þarf til að láta draumana rætast.

Og þegar að er gáð eins vel og unnt er og öllu á botn hvolft – erum við ekki öll á einhvern hátt þess ‚vandræða­unglingur‘ sem þarf svigrúm til að láta draumana rætast – og þurfum á stundum bakhjarla og bjarg­vætti sem leiða okkur áleiðis á lífs­brautinni þar til við getum látið okkar eigin drauma, langanir og þrár ráða för.

Það er ekki amalegur boðskapur að fá með sér í veganesti þegar sögu­stundinni á Sögulofti lýkur, sögukonan, huldu­konan, kvödd og haldið út í vetur­myrkrið í Borgarnesi og áleiðis heim. Ríkari en var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár