Ræddu pistil Guðbergs: „Við viljum annað samfélag“

Hall­grímur Helgason ræddi pistil Guðbergs Bergs­sonar og umræðuna sem fylgdi í kjölfarið í þætti Gísla Marteins í kvöld. „Við viljum annað samfélag,“ sagði Halldóra Geirharðs­dóttir leikkona sem sjálf hefur þurft að glíma við afleiðingar atviks frá því þegar hún var lítil.

Í þætti Gísla Marteins
Í þætti Gísla Marteins Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og Halldóra Geir­harðs­dóttir leik­kona ræddu umræð­una um kyn­ferð­is­of­beldi á RÚV í kvöld. Mynd: RÚV

Hallgrími Helgasyni rithöfundi sárnaði umræðan sem fylgdi í kjölfar pistils sem Guðbergur Bergsson skrifaði í DV, þar sem hann hæddist að þeirri játningu Hallgríms að hann hefði orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi sem ungur maður. Hall­grímur skrifaði um ofbeldið í nýrri bók, Sjóveikur í München, þar sem hann gerir upp einn vetur í lífi sínu. Hann ræddi þetta síðan í viðtali við Frétta­tímann, þar sem hann sagði að ofbeldið hefði verið eins og sveskju­steinn í sálinni, og Stundina um síðustu helgi. Pistill Guðbergs birtist síðan í vikunni undir heitinu Er sjálfs­virðingin komin í jólasölukösina? 

„Þetta var svo skrýtið,“ sagði Hall­grímur þar sem hann var gestur í þættinum Vikan með Gísla Marteini fyrr í kvöld. „Ég var svolítið sár yfir viðbrögðum annarra í fram­haldinu, einhver umræða á Facebook sem ég sá allt of mikið af og menn voru að skrifa jafnvel á minn eigin vegg einhverjar útskýringar út frá bókmennta­fræðilegum og fagur­fræðilegum forsendum þá verðum við að skilja þennan texta öðruvísi.“

Gísli Marteinn benti þá á að Hall­grímur skrifar fallega um Guðberg í bókinni, og Hall­grímur svaraði því til að hann hefði einnig gert það í síðustu bók sinni. „Ég ætti kannski að fara að gera eitthvað annað í næstu bók. Þetta virkar allavega ekki.“

Umdeildur pistill 

Á meðal þess sem Guðbergur skrifaði var: „Nú kemur hver stór­fréttin á fætur annarri í jóla­bókaflóðinu: Hallgrími Helgasyni rithöfundi kvað hafa verið nauðgað, í nýrri bók, með þeim afleiðingum að við samningu hennar hafi einskonar sveskju­steinn (kannski í líkingu við steinbarn Laxness?) gengið niður af honum úr sálinni eða földu móðurlífi í einskonar hommaskáp í skrokknum.“

„Honum yrði tekið opnum örmum í Konukoti“

Þá segir hann Hallgrím enga ljósmynda­fælu heldur það sem í útlöndum sé kallað myndatottara, „svo þjóðin hefur drukkið í sig útlit hans. Þess vegna sagði kvikindi: Hvaða kynvillingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við saklausa þjóhnappa hans? Líklega mun hið sanna seint koma í ljós. Til þess þyrfti skáldið, að eigin sögn, að skrifa þúsund blaðsíðna bók með brennandi efni við 1000 gráðu skapandi hita. En þjóðin með sína heims­frægu samúð spyr: Hví kærir maðurinn þetta ekki? Það er ekki of seint. Honum yrði tekið opnum örmum í Konukoti þar sem hann gæti „unnið í sjálfum sér“ eins og margir og margar til að endur­fæðast síðan með „miklum létti“.“

Pistillinn fjarlægður af netinu

Pistillinn var vægast sagt umdeildur en fjallað var um hann á ýmsum miðlum, meðal annars á Stundinni. Á Vísi var umræðunni lýst með þessum hætti: „Fjölmargir áttu vart orð í eigu sinni af hneykslan einskærri í gær. En, tókst þrátt fyrir andköf að koma reiði sinni og vandlætingu á framfæri.“ 

Í frétt Vísis voru dæmi tekin um ummæli sem höfðu verið látin falla um pistil Guðbergs. Meðal annars var vitnað var í orð Kristjáns B. Jónassonar sem sagði á Facebook:„Og sem hommi, sem forsmáður og úthrópaður maður spurði hann sig líka: Ef það að vera heil­steyptur þýðir líka að maður er alltaf að leika hinn réttsýna, hvaða hrylling er þá alltaf verið að breiða yfir? Við sjáum þessa afstöðu hans eiginlega alltaf best í þeim verkum sem hann þýddi á íslensku fremur en í þessum æsinga­skrifum í fjölmiðla sem beinlínis er alltaf ætlað að vaða beint inn í umræðuna og gera allt vitlaust með gífur­yrðum og djöfulgangi.“

Í sömu frétt sagði ritstjóri DV, Eggert Skúlason, að fáir pistla­höfundar væru jafn áhuga­verðir og Guðbergur. Þá var búið að fjarlægja pistilinn af vef DV en Eggert sagði það vera vegna þess að fólk ætti að kaupa blaðið til að lesa pistilinn. „Ég sem ritstjóri DV vil að fólkið kaupi blaðið og lesi það, en ekki efnið sem þar birtist á netinu. Við viljum selja fólki pistilinn hans. Þetta hefur ekkert með innihald eða umræðu að gera.“

„Við viljum selja fólki pistilinn hans“

Eggert sagði að ekki stæði til að reka Guðberg. „Nei, það stendur alls ekki til að reka Guðberg, fáir pistla­höfundar eru eins áhuga­verðir í dag og Guðbergur Bergsson og oftar en ekki sem pistlar hans vekja umtal og sitt sýnist hverjum. Guðbergur heldur áfram að skrifa í DV og gerir blaðið okkar betur. Heldur betur.“

Samfélagsbyltingar hjálpuðu

Í samtali við Gísla Martein sagðist Hall­grímur hafa verið lengi að manna sig upp í að skrifa um nauðgunina og opinbera sig svona fyrir alþjóð. Byltingar á samfélags­miðlum, eins og Beauty tips byltingin, hafi hins vegar hjálpað honum, þar hafi hann séð að þegar fólk stígur fram með svona sögur fær það fyrst og fremst stuðning. „Það hjálpaði mér.“

Í bókinni lýsir hann því þegar hann í sakleysi sínu þáði aukarúm á hótel­herbergi ókunnugs fólks þegar hann var á ferðalagi í Flórens á náms­árunum. Þegar Hall­grímur hafði lagst til hvílu skreið ókunnugi maðurinn nakinn upp í rúm til hans og braut á honum. Hall­grímur var 22 ára gamall þegar honum var nauðgað, en ofbeldinu fylgdi djúp afneitun. Í samtali við Stundina sagði Hall­grímur að varnar­viðbrögð sálarinnar hafi verið að láta eins og ekkert hefði gerst. Hann segist hafa fundið fyrir skömm og reiði.

Nú eru 34 ár síðan þetta gerðist. Í kvöld sagðist hann ekki hafa getað sleppt því að skrifa um þetta atvik, fyrst hann ákvað að skrifa um þetta tímabil í lífi sínu. Um leið hafi hann vitað að hann myndi fá spurninguna, gerðist þetta í alvöru? „Það væri nátt­úrlega fáránlegt af mér að skálda þetta, því þetta er sjálfs­ævisaga. Þá verð ég að segja já. Þar með er það komið út og það er gott fyrir mig að vissu leyti því þetta er ósýni­legur bakpoki sem ég er búinn að burðast með í gegnum lífið. Bakpoki sem aðrir kannski sjá, en ég hef ekki séð. Ég legg hann frá mér og tilfinningin er góð.“

Þá sagðist hann vonast til þess að fleiri fylgdu í kjölfarið og opnuðu á ofbeldið sem þeir hafa verið beittir. Hann hafi fengið kveðjur frá mönnum sem hafa lent í því sama. Áður en bókin kom út ræddi hann þetta við nokkra og þá kom á daginn að tveir af þremur höfðu lent í þessu sjálfir.

Á sjálf svona sveskjustein

Með Hallgrími í settinu voru Halldóra Geirharðs­dóttir, leikkona, og Margrét Erla Maack, dagskrár­gerðarkona. Halldóra tók undir þetta og sagðist eiga svona sveskju­stein eins og hann. „Ég fór í sálfræði­tíma 25 ára gömul. Það sem ég talaði um við fyrsta sálfræðinginn minn var þetta mál sem ég á frá því að ég er lítil, en hann ýtti því bara til hliðar því hann hafði ekki menntun eða bakland til að hann gæti tekist á við þetta með mér.“

Sem betur fer búi yngri kynslóðir búi við meiri menntun um afleiðingar kynferðis­ofbeldis og úrvinnslu á því. 

„Það sem ég talaði um við fyrsta sálfræðinginn minn var þetta mál sem ég á frá því að ég er lítil, en hann ýtti því bara til hliðar“

Þá var hún mjög hugsi yfir skrifum Guðbergs og sagðist ekki vita hvað ætti að gera við þessa orðræðu.

„Má kúka svona á matar­borðið hjá fólki? Við getum ekki látið eins og það hafi ekki gerst, en einhvern veginn þarf að þrífa eða er það bara svona, eða já, ég veit hreinlega ekki hvað á að gera. Þetta fór inn á svona ofbeldis­stað.

Undir hverju höfum við setið fleiru? Er hann bara með efsta stig af obeldi í þessum texta, efsta stig af því sem við höfum verið að leyfa okkru segja og tala á netinu og pakkar þessu svo flott inn því hann er svo intellectual. Við höfum gefið honum svo mörg prik í gegnum tíðina því ég segi að Guðbergur breytti lífi mínu þegar ég las bók eftir hann,“ sagði Halldóra.

Skynjar sjálfshatur

Þá sagðist hún einnig velta því fyrir sér hvaðan þessi skrif spretta. „Maður fer bara að hugleiða í hvaða ofbeldi lenti hann til þess að hann búi yfir svona miklu sjálfs­hatri. Manneskja sem skrifar svona, hún er fyrst og fremst full af sjálfs­hatri, manneskja sem umber ekki annarri manneskju að segja söguna sína og tala um einhver tímabil lífsins í mildi, sem ég ímynda mér að þú gerir gagnvart þér. Þú ert að sættast við einhvern kafla í lífi þínu,“ sagði hún og leit á Hallgrím. „Það segir mér að hann hefur ekki farið mildum höndum um eigið líf. Svona sé ég þetta. Ég held að hann muni aldrei skrifa þessa sögu. Ég skynja bara mikið sjálfs­hatur.“

Síðan bætti hún því við að það væri engin ástæða til þess umbera svona orðræðu. „Pökkum við ofbeldi inn í fallega orðræðu? Hvað eigum við að vera lengi þarna? Nei, við viljum annað samfélag þar sem við nálgumst hvort annað af mildi og berum virðingu fyrir þeim sköpunar­krafti sem kemur í gegnum hvern og listamann, af því að það er það sem Hall­grímur er. Við verðum að treysta hans innsæi. Þetta er saga sem hann þurfti að segja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár