Kostnaður lendir áfram á sjúklingum þrátt fyrir stórbætta stöðu ríkissjóðs

Með breyttu greiðslu­þátttöku­kerfi færist kostnaður af heilbrigðis­þjónustu milli sjúklinga­hópa. Á undan­förnum áratugum hefur greiðslu­þátttaka almennings stóraukist.

Sá hópur aldraðra og öryrkja sem þarf sjaldan á heilbrigðis­þjónustu að halda mun þurfa að borga hálfum milljarði meira fyrir þjónustuna á ári hverju ef fyrir­hugaðar breytingar á greiðslu­þátttöku­kerfinu í heilbrigðis­þjónustu verða að veruleika. Hið opinbera mun ekki leggja nýja kerfinu til aukið fjármagn heldur flytja kostnað milli sjúklinga­hópa. Gert er ráð fyrir að kostnaður þeirra 15 prósenta sjúklinga sem nota þjónustuna mest muni lækka og að kostnaðurinn dreifist á hin 85 prósentin.

Þetta er á meðal þess sem fram kom á málþingi Öryrkja­bandalags Íslands um greiðslu­þátttöku­kerfið í gær. Á meðal þeirra sem töluðu var Gunnar Alexander Ólafsson, heilsu­hagfræðingur sem nýverið vann skýrslu um greiðslu­þátttöku­kerfið fyrir Öryrkja­bandalagið. Fram kom í máli hans að á tuttugu ára tímabili, frá 1984 - 2014 hefðu heilbrigðis­útgjöld heimil­anna aukist um 275% á föstu verðlagi. Á sama tíma hefðu heilbrigðis­útgjöld hins opinbera hækkað um 97%. Kostnaðurinn við heilbrigðis­kerfið hefði því færst í auknum mæli frá ríkis­sjóði og til heimila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár