Íslenskt kranavatn markaðssett sem lúxusvara

Markaðs­herferð hvetur ferðamenn til þess að draga úr plast­notkun og drekka kranavatn.

Ný markaðs­herferð á vegum á vegum Inspired by Iceland, Umhverfis­stofu og hagaðila hvetur ferðamenn til þess að draga úr plast­notkun með því að drekka kranavatn. Krana­vatnið er markaðs­sett sem ókeypis lúxusvara. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Íslands­stofu.

Markmiðið með herferðinni er að draga úr plast­notkun ferða­manna ásamt því að varpa ljósi á gæði íslensk vatns “sem er eitt hreinasta og bragð­besta kranavatn í heimi” að því er segir í tilkynningunni.

Þar með sé stutt við umhverfis­vernd jafnframt sem farið sé í aðgerðir til þess að uppfylla Heims­markmið Sameinuðu þjóðanna.

Nú hefur myndband sem hluti af herferðinni verið birt á Youtube-síðu Inspired by Iceland.

Í tilkynningunni er vísað í könnun ferða­manna í Evrópu og Norður-Ameríku sem sýnir 65 prósent ferða­manna auka plastflösku­notkun á ferða­lögum.

Ráðherrar ánægðir með herferðina

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra segir samkvæmt tilkynningunni að ánægjulegt sé að vekja athygli á íslensku vatni og aðgengi að því, því margir ferðamenn þekki ekki gæði íslensks krana­vatns.

Enn fremur segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, krana­vatnskerfið vera eitt af skrefunum til þess að stuðla að ábyrgri hegðun ferða­manna á Íslandi og víðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár