Bandaríkin leggja 20 prósent skatt á innfluttar vörur frá Mexíkó

Fjölmiðla­fulltrúi Donalds J. Trump, Sean Spicer, segir að stefna bandarískra stjórn­valda sé sú að leggja 20 prósent skatt á allar vörur sem fluttar eru til Banda­ríkjanna frá Mexíkó. Trump hefur þegar tilkynnt um að veggur verði reistur á landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó, en talið er að kostnaður við hann sé í það minnsta 10 milljarðar Bandaríkja­dala.

Spicer setti skattinn í samhengi við byggingu múrsins og sagði að líta mætti þannig á, að skatturinn myndi fjármagna gerð múrsins. „Með þessari skatt­lagningu fáum við tíu milljarða dollara á ári,“ sagði Spicer. Bandaríkja­markaður er langsamlega mikil­vægasti markaður fyrir­tækja í Mexíkó en um 80 prósent af útflutningi landsins fer til Banda­ríkjanna. 

Líklegt má telja að vöru­verðið muni hækka á þessum vörum, og því verði það á endanum neytendur í Banda­ríkjunum sem greiði fyrir hækkun á skattinum. Ríkis­sjóður Banda­ríkjanna greiðir óumdeilanlega fyrir múrinn, eins og Trump hefur raunar staðfest.

Skatturinn er því þungt efnahagslegt högg fyrir Mexíkó. Fyrr í dag ákvað forseti Mexíkó, Pena Nieto, að hætta við opinbera heimsókn til Banda­ríkjanna. Hann mótmælti eindregið ákvörðuninni um að reisa múrinn, og sagði hana bæði óþarfa og ógna mikilvægu sambandi ríkjanna.

Trump er nú staddur í Philadelphia þar sem hann mun ávarpa Repúblikana á fundi. Trump sjálfur gerði lítið úr því að fundinum með Mexíkó­forseta hefði verið frestað, og sagði að þeir ætluðu sér að hittast á fundi í næstu viku. Ekkert liggur þó fyrir um það ennþá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár