Fyrrverandi landlæknir: „Aukin tilhneiging til að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu“

Ólafur Ólafsson, fyrr­verandi land­læknir, varar við því að gróða­fyrirtækjum sé hleypt að rekstrinum

Ólafur Ólafsson, fyrr­verandi land­læknir, lýsir áhyggjum af síaukinni einka­væðingu íslenskrar heilbrigðis­þjónustu í viðtali sem birtist í febrúar­hefti Lækna­blaðsins. „Það virðist sem aukin tilhneiging sé til þess að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu og draga samhliða verulega úr opinberri fjár­mögnun þess,“ segir hann.

Hann bendir sérstak­lega á að reynsla Breta af einka­væðingu hluta heilbrigðis­þjónustunnar sé slæm. „Í kjölfar verktaka­samninga við lækna árið 1991 í Bretlandi var ekki numið staðar. Verulegar breytingar urðu á samfélags­legum rekstri heilbrigðis­þjónustunnar og við tók einka­rekstur og að hluta til einka­væddur rekstur. Mörg opinber sjúkrahús eru nú einka­rekin og taka við einka­fjármagni frá hluthöfum sem markaðs­væða stofnanir og vilja eðlilega græða á rekstrinum. Hagnaðurinn fer yfirleitt út úr greininni,“ segir hann og bætir við: 

„Hagnaðar­sjónarmiðin valda því að frekar eru valdir „auðveldir“ sjúklingar til meðferðar en síður erfiðir eða þungir sjúklingar vegna aldurs eða langvinnra sjúkdóma. Sjúklingum er mismunað og ójafnræði skapast. Stjórnunar­kostnaður hefur tvöfaldast og færst meira í hendur hlut­hafanna. Svipuð þróun hefur orðið í Svíþjóð eftir 2008 og samkvæmt skýrslum sænsku ríkis­endur­skoðunarinnar fyrir árið 2015 hafa jákvæðar breytingar á heilsufars­árangri enn ekki komið fram.“ 

Ólafur segir að svo virðist sem íslensk stjórn­völd skorti algjör­lega rökstuðning fyrir því að breyta frekar rekstrar­fyrir­komulagi heilbrigðis­þjónustunnar nema gert sé ráð fyrir því að hið opinbera verði meðstjórnandi í rekstrinum. Það sé óráð að hleypa gróða­fyrirtækjum að rekstrinum líkt og gert hefur verið í Bretlandi.

Stór ákvörðun á borði Óttars

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum stendur Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra frammi fyrir því að ákveða hvort einka­fyrirtækið Klíníkin fái að opna legudeild fyrir sjúklinga í Ármúla.

Páll Matthíasson, forstjóri Land­spítalans, hefur lýst því yfir að slíkt kynni að draga úr getu spítalans til að rækja hlutverk sitt. Haft var eftir honum í umfjöllun Frétta­tímans á dögunum að hann hefði þá sérstakar áhyggjur af að missa dýrmæta starfs­krafta sérhæfðs starfs­fólks til einka­fyrir­tækisins:

„Verði af þessum áformum mun það ekki einfalda rekstur Land­spítala, eins og ég sé fram haldið, heldur flækja hann. Framlag einka­rekstrar sem þessa er takmarkaður fyrir heildina enda þungi þeirra í einfaldari aðgerðum með mikla framlegð, sem er hefð­bundin rjóma­fleyting. Afleiðingin verður sú að grafið verður undan fámennri en mikil­vægri sérgrein, sem sinnir sérhæfðum hópi sjúklinga á Land­spítala. Flóknari aðgerðir þyrftu áfram að vera á Land­spítala, en sjúklingar sem á slíkum aðgerðum þurfa að halda munu líða fyrir það að bæklunar­sérgreinin væri orðin miklu veikari á spítalanum. Afleiðingarnar yrðu mjög alvarlegar, út frá öllum mæli­kvörðum, öðrum en gróða viðkomandi heilbrigðis­starfsmanna. Auðvitað gæti þetta orðið þeim til hagsbóta sem einfaldari þjónustu þurfa og bíða hennar, en þá þjónustu getur spítalinn veitt, fái hann til þess möguleika.“

Óttarr Proppé hefur ekki gert upp hug sinn ef marka má svör hans á Alþingi en þó sagt að engar ákvarðanir um grundvallar­breytingar á rekstrar­formi heilbrigðis­þjónustunnar verði teknar án víðtæks samráðs.

Stundin hefur fjallað umtals­vert um einka­rekstur í heilbrigðis­kerfinu, meðal annars um fyrir­tækið Klíníkina og arðgreiðslur heilbrigðis­fyrirtækja.

Á lista Láns­trausts yfir arðbærustu fyrirtæki landsins miðað við hagnað sem hlutfall af eigin fé er að finna þrjú slík fyrirtæki. Arðgreiðslur úr tveimur þeirra nema mörg hundruð milljónum, en starfsemin er fjár­mögnuð að hluta til af Sjúkra­tryggingum Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár