Sat í stjórn og þrýsti á borgarstjóra en sver af sér hagsmuni

Pétur Mart­eins­son, sem gefur kost á sér í odd­vita­sæti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sat í stjórn lóða­fé­lags í Skerja­firði og þrýsti á borg­ar­stjóra að koma upp­bygg­ingu í far­veg. Hann sagði sig úr stjórn þegar blaða­maður spurð­ist fyrir um málið.

Sat í stjórn
Sat í stjórn Pétur hefur gefið kost á sér í fyrsta sæti í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Hann sat í stjórn félags sem heldur ein­ungis utan um lóðir sem hann sver af sér öll hags­muna­tengsl við. Mynd: Aðsend/Skúli Hólm

Pétur Mart­eins­son sat í stjórn félags sem fór með eign­ar­hlut í lóða­upp­bygg­ingu í Skerja­firði þó að hann hafi þver­neitað í við­tali við Heim­ild­ina í byrjun árs að hann hefði hags­muni af lóða­upp­bygg­ing­unni. Hann sagði sig úr stjórn félags­ins sama dag og Heim­ildin spurði hann út í málið, fimm dögum eftir að hann full­yrti í við­tali við blaða­mann að hann tengd­ist verk­efn­inu ekki lengur þar sem annað fyr­ir­tæki hefði leyst til sín lóð­irnar. Þá stað­festir Pétur í sam­tali við blaða­mann að hann hafi sent þáver­andi borg­ar­stjóra, Einari Þor­steins­syni, skila­boð þar sem þrýst var á að veita verk­efn­inu fram­gang. Pétur heldur því fram að hann hafi sent skila­boðin í maí eða júní árið 2023 en í svari fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra kemur fram að hann hafi átt í reglu­legum sam­skiptum við Pétur fram í febr­úar 2024, rúm­lega ári eftir að Pétur seg­ist hafa selt frá sér lóð­irnar og hafi því ekki átt neinna hags­muna …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Smá nálykt úr lestinni. Þarf ekki endilega að vera lík þar niðri.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lóðirnar í Skerjafirði

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár