Stefndi á uppbyggingu í Skerjafirði en er búinn að selja lóðirnar áfram

Pétur Mart­eins­son seg­ist ekki lengur hafa hags­muni af því að upp­bygg­ing á Skerja­fjarð­ar­reitnum verði að veru­leika. Félag hans hafi selt reit­ina áfram.

Pétur Marteinsson hefur getið sér gott orð í rekstri í Reykjavíkurborg.
Pétur Mart­eins­son hefur getið sér gott orð í rekstri í Reykja­vík­ur­borg.

Félag í eigu Péturs Mart­eins­sonar, sem hefur gefið kost á sér í fyrsta sætið í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, fékk úthlutað lóðum í Skerja­firði árið 2019 og var ætl­unin að reisa þar um 72 íbúðir. Ágrein­ingur er um upp­bygg­ing­una. 

Fréttin hefur verið upp­færð eftir að Pétur hafði sam­band við blaða­mann. Þar var því haldið fram að Pétur hefði hags­muni af lóð­unum, en hann þver­tekur fyrir það.

„Mið­bæjar­eignir tóku þetta félag yfir fyrir um tveimur árum síðan,“ segir Pétur Mart­eins­son sem tekur fyrir að hann hafi hags­muni af upp­bygg­ingu á Skerja­fjarð­ar­reitnum. Félagið var tekið yfir að hans sögn, þar sem biðin hafi verið löng og fjár­frekt að bíða eftir sam­þykki Reykja­vík­ur­borgar. 

Heim­ildin greindi frá því að Félag í eigu Péturs, Frambúð, hefði mikla hags­muni af því að upp­bygg­ing hæf­ist í Skerja­firð­inum og þar væri hann sjálfur í lyk­il­stöðu næði hann kjöri í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar. Það hefur þó breyst …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lóðirnar í Skerjafirði

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár