Tekjur ríkissjóðs vegna úttektar á sparnaði um tíu milljörðum hærri en áætlað var

Þegar ríkis­stjórnin ákvað að heimila fólki að taka út séreignar­sparnað sinn til að takast á við kórónu­veiru­faraldurinn var reiknað með að teknir yrðu út tíu milljarðar króna. Nú stefnir í að millj­arð­arnir verði 38.

Úttekt á séreignarsparnaði var kynnt sem úrræði til að takast á við efnahagslegar afleiðingar faraldursins í fyrsta aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar, sem var kynntur í mars 2020.
Úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði var kynnt sem úrræði til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar far­ald­urs­ins í fyrsta aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar, sem var kynntur í mars 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Um síðustu áramót höfðu landsmenn alls tekið út um 37 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum síðan slíkar úttektir voru kynntar til leiks sem hluti af fyrsta aðgerð­ar­pakka stjórn­valda til að takast á við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Úttekt­irnar áttu að hjálpa fólki til að takast á við skamm­tíma­fjár­hags­vanda.

Hægt var að sækja um nýtinguna út síðasta ár. Til viðbótar við það að heimila fólki aðgang að eigin sparifé felst í aðgerðinni tekju­öflun fyrir ríkissjóð, enda þurfa allir sem nýta sér úrræðið að greiða skatt af sparn­að­inum þegar hann var greiddur út. Þannig er ríkis­sjóður að taka út tekjur nú sem annars hefðu verið greiddar síðar.

Þegar aðgerðin var kynnt til leiks kom fram að rík­is­stjórnin reikn­aði með að teknir yrðu út tíu millj­arðar króna af sér­eign­ar­sparn­að­in­um, en upp­haf­lega hug­myndin í kringum hann var sú að slíkur sparn­aður myndi auka ráð­stöf­un­arfé fólks þegar það fer á eft­ir­laun. Það hefði skilað rík­is­sjóði um 3,5 millj­örðum króna í nýjar tekj­ur.

Lengi hefur legið fyrir að eft­ir­spurnin eftir því að nýta úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði var langt umfram vænt­ingar stjórn­valda. Í mars 2021 var áætluð heildar­upphæð 28,6 milljarðar króna og í september var hún komin í 32,7 milljarða króna. Í nýuppfærðum tölum á vef stjórnar­ráðsins, sem sýnir stöðu mála í byrjun þessa árs, er upphæðin þegar komin í 37 millj­arða króna og mun sam­kvæmt áætlun enda í að minnsta kosti 38 millj­örðum króna. Því munu úttektir vera næstum fjórum sinnum það sem upp­haf­lega var áætlað og því má gera ráð fyrir því að tekjur rík­is­sjóðs vegna skatt­greiðslna af nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar sem hluta af aðgerða­pakka til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs verði um 13,4 millj­arðar króna.

Það er tíu milljörðum krónum meira en upphaf­lega var áætlað.

Ekki ljóst hverjir borga

Ekki hefur verið birt neitt nið­ur­brot á þeim hópi sem hefur nýtt sér þetta úrræði en ætla má að þar sé, að minnsta kosti að hluta, um að ræða fólk sem hefur átt í greiðslu­erf­ið­leikum vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19. Þeir sem fóru úr vel laun­uðum störfum á atvinnu­leys­is­bætur eru lík­legri til að til­heyra þessum hópi en aðr­ir, þar sem tekju­hærri hafa almennt verið lík­legri til að spara sér­eign en tekju­lægri.

Sú ályktun fær stoð í fjöl­mörgum sam­tölum sem Kjarn­inn hefur átt við fólk sem hefur misst vinnu eða tekjur síðan að far­ald­ur­inn hófst og í könnun sem Varða, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, gerði og var lögð var fyrir félaga í aðild­­ar­­fé­lögum Alþýð­u­­sam­­bands Íslands (ASÍ) og BSRB í nóv­­em­ber og des­em­ber 2020 þar sem staða launa­­fólks var könn­uð. Í nið­ur­stöðum hennar kom fram að um fjórð­ungur launa­­fólks átti erfitt með að láta enda ná saman og fimmt­ungur þess gat ekki mætt óvæntum útgjöld­­um. Um helm­ingur atvinnu­lausra átti erfitt með að láta enda ná saman og um 40 pró­sent þeirra gat ekki mætt óvæntum útgjöld­um.

Þar er um að ræða þá hópa hér­lendis sem verða fyrir mestum nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum af yfir­stand­andi heims­far­aldri.

Ekki greiddur skattur af ann­ars konar nýt­ingu

Á meðan að þeir sem hafa orðið fyrir fjár­hags­legum búsifjum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þurfa að greiða skatt af nýt­ingu heim­ildar til að taka út sér­eign­ar­sparnað á þurfa þeir sem nýta sama sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán ekki að greiða neinn skatt. Tíma­bundin heim­ild til að gera slíkt hefur verið í gildi í lögum frá sumr­inu 2014 og síðan verið fram­lengd þrí­veg­is. Hún er nú í gildi til loka júní­mán­aðar 2023.

Kjarn­inn greindi frá því um miðjan mars í fyrra að frá 2014 og fram til loka jan­úar 2021 hefðu alls 62.952 ein­stak­ling­ar, um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræði. Þar er um að ræða bæði þá sem hafa nýtt sér almenna úrræðið og úrræðið „Fyrsta fast­eign“, sem kynnt var til sög­unnar sum­arið 2016.

Sam­kvæmt tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið tók saman fyrir Kjarn­ann nam umfang nýt­ingar Íslend­inga á úrræð­unum tveimur á tíma­bil­inu alls 92 millj­örðum króna. Í þeim tölum kom einnig fram að áætluð lækkun tekju­skatts og útsvars frá því að úrræðin buð­ust fyrst og fram til síð­ustu ára­móta sé 21,1 millj­arður króna.

Því hafði sá hópur fengið 21,1 millj­arða króna í með­gjöf úr rík­is­sjóði sem öðrum hefur ekki boð­ist á umræddu tíma­bili. Um er að ræða tekju­tap sem ríki og sveit­ar­fé­lög þurfa ekki að takast á við nú, þar sem skattur af sér­eign­ar­sparn­aði er vana­lega borg­aður þegar fólk fer á eft­ir­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár