Norður-Kórea eykur getuna til framleiðslu kjarnorkuvopna

Leið­togi Norð­ur-Kór­eu hef­ur lýst því yf­ir að landið muni aldrei af­sala sér kjarn­orku­vopn­um. Nú bend­ir allt til þess að fram­leiðslu­geta kjarn­orku­vopna hafi auk­ist til muna þar í landi. Kenn­ing­ar eru um að Rússar styðji við fram­leiðsl­una.

Leiðtogarnir
Leið­tog­arnir Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu með Vladimir Pútín, for­seta Rúss­lands. Myndin er tekin í sept­em­ber þegar þeir yfir­gáfu fund sem fram fór í höf­uð­borg Kína. Mynd: AFP

Norður-Kórea hefur tekið „mjög alvarleg“ skref til að auka getu sína til fram­leiðslu kjarnorku­vopna, að sögn yfirmanns kjarnorku­eftirlits Sameinuðu þjóðanna sem var í heimsókn í Seúl á miðvikudag.

Talið er að einræðis­ríkið starfræki margar aðstöður til auðgunar úrans, sem er lykil­þáttur í fram­leiðslu kjarnorku­sprengja, að sögn leyni­þjónustu Suður-Kóreu.

Þar á meðal er aðstaða á Yongbyon-kjarnorku­svæðinu, helstu kjarnorku- og rannsóknarstöð Norður-Kóreu. Þar fer fram starfsemi sem tengist bæði auðgun úrans og fram­leiðslu plútóníums, efna sem hægt er að nota í kjarnorku­vopn.

Hraður vöxtur 

Á meðan viðræðum Norður-Kóreu við önnur ríki stóð lýsti stjórnin því yfir að hún hefði lokað starfseminni í Yongbyon til að draga úr spennu og fá refsiaðgerðum aflétt. Það fékkst hins vegar aldrei staðfest og árið 2021 bentu gervihnatta­myndir til þess að starfsemi þar væri hafin á ný, meðal annars í kjarna­kljúfum og við endur­vinnslu.

„Með reglu­bundnu mati höfum við staðfest að hraður vöxtur er í starfseminni,“ sagði Rafael Grossi, framkvæmda­stjóri Alþjóða­kjarnorku­mála­stofnunarinnar (IAEA), þegar hann ræddi við fjölmiðla í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. 

Stofnunin hefur einnig orðið vör við aukna starfsemi í endur­vinnslu­einingu Yongbyon og í léttvatns­ofni þar, auk þess sem önnur mannvirki hafa verið tekin í notkun, að sögn Grossi.

„Allt bendir þetta til mjög alvarlegrar aukningar á getu Norður-Kóreu til fram­leiðslu kjarnorku­vopna, sem talin er nema nokkrum tugum sprengja,“ sagði hann.

Sæta refsiaðgerðum

Norður-Kórea framkvæmdi fyrstu kjarnorku­tilraun sína árið 2006 og sætir víðtækum refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna fyrir að fram­fylgja bönnuðum vopna­áætlunum.

Kim Jong-un hefur verið leiðtogi Norður-Kóreu frá því að faðir hans lést árið 2011.  Hann og aðrir hátt­settir embættis­menn hafa lýst því yfir að landið muni aldrei afsala sér kjarnorku­vopnum. Lokað var fyrir aðgang eftirlits­manna IAEA árið 2009.

Grossi sagði að stofnunin hefði einnig orðið vör við byggingu „nýrrar aðstöðu svipaðrar auðgunar­stöðinni í Yongbyon“. Erfitt væri að meta aukningu í fram­leiðslu án þess að heimsækja svæðið. „Við teljum hins vegar að um verulega aukningu á auðgunar­getu Norður-Kóreu sé að ræða,“ sagði hann.

Bandamenn Rússa

Spurður hvort Rússland aðstoði Norður-Kóreu við þróun kjarnorku­vopna sagði Grossi að IAEA hefði ekki séð „neitt sérstakt sem bendir til þess“.

Norður-Kórea hefur sent hermenn og stórskota­liðs­skot til að styðja innrás Rússa í Úkraínu. Sérfræðingar telja að Pyongyang fái á móti tæknilega hernaðar­aðstoð frá Moskvu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár