Víðir bóndi í stríði gegn laxeldinu: „Hrafninn eyðilagði hér 80 rúllur“

Víðir Hólm Guðbjartsson, bóndi í Grænuhlíð í Arnar­firði, hefur staðið í áralöngu stappi við eldis­fyrirtækið Arnarlax. Bóndinn á í mála­ferlum við Arnarlax í félagi við aðra. Hefur áhyggjur af umhverfis­áhrifum laxeldisins. Arnarlax vill ekki tjá sig um gagnrýni Víðis á fyrir­tækið og segir hana „tilhæfu­lausa“.

Hrafnagerið á heyrúllunum
Hrafnagerið á heyrúll­unum Víðir Hólm Guð­bjarts­son segir að hrafnar sæki svo í laxa­fóðrið sem Arnarlax sé kæru­laust um og að fugl­arnir setj­ist um heyrúll­urnar hans og skemmi þær.

„Það er voðalega lítill vinskapur okkar á milli. Ég fæ hroll bara af því að hugsa um þá,“ segir Víðir Hólm Guðbjartsson, bóndi á Grænuhlíð í sveitar­félaginu Bíldudal, þegar hann ræðir um samskipti sín og eldislax­fyrir­tækisins Arnarlax á Bíldudal. Víðir Hólm hefur staðið í ströngu gagnvart fyrir­tækinu og gagnrýnt umhverfis­áhrif laxeldis fyrir­tækisins á búskap hans og lífs­skilyrði á svæðinu. 

Víðir Hólm er einn af þeim einstaklingum sem hefur stefnt Arnarlaxi og fleiri aðilum út af starfsemi fyrir­tækisins í Arnar­firði og umhverfis­áhrifa laxeldisins. Málsóknar­félag var stofnað til þess arna sem í eru fjölmargir aðilar, einstaklingar og veiði­réttarhafar í ýmsum fisk­veiðiám. Stefna málsóknar­félagsins gegn Arnarlaxi var þingfest í byrjun þessa árs. Lögmaður hópsins er Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrr­verandi hæstaréttar­lögmaður og laxveiði­maður. Þannig að ljóst er að bóndinn hugsar Arnarlaxi þegjandi þörfina. 

Hrafninn eyðilagði heyrúllurnar

Víðir segir að barátta sín hafi litlu skilað. „Ég er búinn að deila á þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár