Versti dagur á Wall Street í sjö ár - Verðhrun á hlutabréfum

Fjár­festar eru sagðir vera neikvæðir vegna alþjóða­legs tolla­stríðs Banda­ríkjanna og Kína. Vaxta­hækkanir og vaxandi verðbólga.

Hlutabréfa­vísitala Nasdaq í Banda­ríkjunum lækkaði um 4,4 prósent í dag sem er mesta lækkun í sjö ár. Sérstak­lega lækkaði virði tækni­fyrirtækja mikið, en samanlagt lækkaði verð­miðinn á Apple, Amazon og Netflix, um 120 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 14.400 milljörðum króna.

Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal er lækkunin ekki síst rakin til vaxandi neikvæðni meðal fjárfesta yfir hækkandi vöxtum á alþjóða­mörkuðum og einnig vaxandi verðbólgu­þrýstingi, ekki síst vegna þess að hröð hækkun olíuverðs er nú farin að koma fram í hærra vöruverði. Þá eru fjár­festar einnig sagðir áhyggju­fullir yfir viðskipta­stríði Kína og Banda­ríkjanna, sem nú er í algleymingi.

Donald Trump Bandaríkja­forseti er vanur að vera með augun á hlutabréfa­markaðnum, og hefur í ófá skipti sagt að hlutabréfa­verð hafi aldrei verið hærra, þegar hann fjallar um stöðu efnahags­mála í Banda­ríkjunum. Undan­farin misseri hefur hann gagnrýnt Seðla­banka Banda­ríkjanna harðlega fyrir að vera að hækka vexti, en stýri­vextir í Banda­ríkjunum eru nú 2,25 prósent og er útlit fyrir að þeir hækki í rúmlega 3 prósent á næsta ári, samkvæmt efnahagsspá bankans.

Trump lét hafa eftir sér í dag að forveri hans, Barack Obama, hefði búið við allt aðra stöðu en hann, því þá hefðu vextir verið nálægt núlli. Núna væri staðan önnur og það væri „óásættanlegt“. Sagði hann að bankann vera orðinn „brjálaðan“ á dögunum, og vonaðist til þess að hann myndi snúa af braut vaxtanahækkana. Jerome Powell er nú seðla­bankastjóri, eftir að Trump skipaði hann í starfið.

Á íslenskum hlutabréfa­markaði hefur ávöxtun ekki verið góð undan­farna tólf mánuði. Vísitalan hefur lækkað um tæplega 6 prósent á því tímabili, en sé horft til ársins 2018 þá hefur hún lækkað um rúmlega 14 prósent. 

Slök ávöxtun á markaðnum sést meðal annars á neikvæðri ávöxtun innlendra hlutabréfa­sjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár