Segir að þjóðir hafi efasemdir um evruna „fyrst og fremst af þjóðernisástæðum“

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir það hvorki til­viljun né heimsku að nán­ast allar þjóðir Evrópu kjósi evr­una.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að þjóðir sem hafi efa­semdir um evr­una hafi slíkar efa­semdir fyrst og fremst af þjóð­ern­is­á­stæðum en ekki af efna­hags­legum ástæðum. 

Þetta kemur fram í grein sem hann birti í Frétta­blað­inu í morgun. Þar bendir Ágúst á að krónan hafi orsakað óstöð­ug­leika og kallað á hávaxta­stefnu og verð­trygg­ingu. 

„En í evru­landi er gjald­mið­ill sem kallar ekki á háa vexti, verð­trygg­ingu, höft og rús­sí­bana­ferð. Það er hvorki til­viljun né heimska að nán­ast allar þjóðir Evrópu hafa kosið evr­una. Og þær þjóðir sem hafa efa­semdir um evr­una eru það fyrst og fremst af þjóð­ern­is­á­stæðum en ekki af efna­hags­legum ástæðum,“ skrifar hann.

Á meðal Evr­ópu­ríkja sem ekki hafa tekið upp evru eru nágranna­lönd Íslands, t.d. Noregur, Svíþjóð og Bretland en auk þess hefur hinn sam­evr­ópski gjald­mið­ill orðið æ umdeild­ari í ríkjum á borð við Grikk­land, Spán og Ítalíu sem fóru illa út úr evru­krís­unni.

Und­an­farin ár hefur fjöldi fræði­manna gagn­rýnt evr­una – mynt­sam­starfið og þau lög­mál sem það lýtur – á efna­hags­legum for­sendum og varað við því að evran geti grafið undan efna­hags­upp­bygg­ingu í Evrópu og sam­vinnu Evr­ópu­þjóða. Má í þessu sam­hengi nefna bækur á borð við The Euro: And its Threat to the Future of Europe eftir hag­fræð­ing­inn Joseph Stiglitz og hina nýút­komnu EuroTra­gedy: A Drama in Nine Acts eftir Ashoka Mody, hag­fræð­ing sem var yfir sendi­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á Írlandi eftir alþjóð­lega fjár­mála­hrunið. 

„Ef við hefðum ekki tekið tvö núll af krón­unni værum við nú með milljón króna seðil í vesk­inu. Það segir sína sögu,“ skrifar Ágúst. „Þá er krónan engin töfra­lausn þegar kemur að vernd gegn atvinnu­leysi eins og sumir telja. Í hrun­inu, sem m.a. varð vegna krón­unnar, urðu 20.000 manns atvinnu­laus. Í evru­landi er atvinnu­leysi sums staðar hærra en á Íslandi og sums staðar svipað.“

Full­yrð­ing Ágústs um atvinnu­leysi er óná­kvæm og í raun mis­vísandi. Samkvæmt nýj­ustu atvinnu­leysis­tölum Eurostat bjó ekk­ert evru­ríki við minna atvinnu­leysi en Ísland í ágúst og í lang­flestum evru­ríkj­unum er atvinnu­leysi tals­vert meira en hér. Þetta á meðal ann­ars við Finnland, eina Norð­ur­landa­ríkið  sem hefur tekið upp evr­una, en þar er atvinnu­leysi 7,6 pró­sent. Atvinnu­leysi í öllu Evr­ópu­sam­band­inu er rúm­lega tvö­falt meira en atvinnu­leysið á Íslandi og í „evru­landi“ er atvinnu­leysi nú 8,1 pró­sent. 

Ágúst bendir á að geng­is­veik­ing und­an­far­inna vikna bitni á lífs­kjörum almenn­ings en gagn­ist fyr­ir­tækjum. „Stór­fyr­ir­tækin eru auð­vitað varin en 251 fyr­ir­tæki á Ísland hefur heim­ild til að reka sig í öðrum gjald­miðli. Venju­legar íslenskar fjöl­skyldur og venju­leg íslensk fyr­ir­tæki græða ekk­ert á krón­unni. Þvert á móti veldur hún enda­lausum kostn­aði og óvissu,“ skrifar hann. „Að reka venju­legt fyr­ir­tæki á Íslandi með krón­una jafn­ast á við hættu­lega áhættu­hegðun. Og að reka heim­ili á Íslandi með krón­una er ein­fald­lega dýrt. Þetta eru engin geim­vís­indi.“

Uppfært: Upp­haf­lega stóð í frétt­inni að Tékkland væri eina evru­ríkið þar sem atvinnu­leysi hefði verið minna en á Íslandi í ágúst. Hið rétta er að Tékkland er eina Evr­ópu­sam­bands­ríkið í þessum sporum en not­ast ekki við evru. Þannig býr ekk­ert evru­ríki við minna atvinnu­leysi en Íslend­ingar. Fréttin hefur verið lag­færð með hlið­sjón af þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár