Fundað 30 sinnum í úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Á þremur árum hefur úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál fundað 30 sinnum. Með­al­máls­með­ferð­ar­tím­inn stytt­ist milli ára, sam­kvæmt for­sæt­is­ráð­herra.

Alþingi
Alþingi Mynd: Birgir Þór Harðarson

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál fund­aði þrjá­tíu sinnum á árunum 2015 til 2017, eða átta sinnum árið 2015, tólf sinnum árið 2016 og tíu sinnum árið 2017. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni um upp­lýs­inga­mál sem birt­ist í gær.

Björn Leví spyr hvort skýr­ingar séu á því hvers vegna mál bíði allt að 392 daga frá kæru og þar til úrskurður er kveð­inn upp.

Í svari ráð­herra er bent á að með­al­máls­með­ferð­ar­tím­inn stytt­ist milli áranna 2017 og 2018 úr 391 degi að með­al­tali í 210 daga, eða um 46 pró­sent. Í fyrstu skýrslu for­sæt­is­ráð­herra, sem lögð var fram á Alþingi í maí 2016, segir að máls­með­ferð­ar­tím­inn hafi ekki styst eins og vonir hafi staðið til. Ástæðuna sé lík­lega fyrst og fremst að rekja til auk­ins fjölda erinda, þar með talið kæru­mála, til nefnd­ar­innar. Þessi þróun hafi meðal ann­ars vera talin stafa af breyt­ingum á gild­is­sviði upp­lýs­inga­laga, af auk­inni umfjöllun um nefnd­ina í fjöl­miðlum og af vit­und­ar­vakn­ingu almenn­ings um kæru­leið til nefnd­ar­innar.

Umfang kærumála vaxið

Samhliða þess­ari þróun hefur umfang ein­stakra kæru­mála vaxið, segir í svar­inu. Í kjöl­far hruns íslenska fjár­mála­kerf­is­ins árið 2008 hafi nefnd­inni til að mynda verið nauð­syn­legt að leysa úr rétti til aðgangs að umfangs­miklum gagna­söfnum í fórum stjórn­valda, til dæmis hjá Þjóð­skjala­safni og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Loks sé fyr­ir­hug­uðum aðgerðum til að stytta máls­með­ferð­ar­tíma nefnd­ar­innar lýst, það er að bjóða laga­nemum starfs­nám hjá nefnd­inni og ráða sum­ar­starfs­mann.

Í svar­inu er bent á að í annarri skýrslu for­sæt­is­ráð­herra frá því í maí 2017 komi fram að afrakstur þess­ara aðgerða hafi birst í auknum fjölda úrskurða. Ástæða sé til að ætla að máls­með­ferð­ar­tími nefnd­ar­innar hafi náð hámarki árið 2016, þar sem 391 dagur leið að með­al­tali frá kæru til úrskurðar. Þessi ályktun fái stoð í þriðju skýrslu for­sæt­is­ráð­herra frá því í maí 2018, þar sem fram kemur að sama tala fyrir árið 2017 hafi verið 210 dagar.

Ráðherra segir að hvað ein­stök mál varði geti máls­með­ferðin taf­ist af ýmsum öðrum ástæðum en önnum í starfi úrskurð­ar­nefnd­ar­innar almennt, svo sem af örð­ug­leikum við að afla nauð­syn­legra gagna.

Markmiðið að meðalmálsmeðferðartími verði 90 dagar

Björn Leví spyr jafn­framt hvort ráð­herra telji að ásætt­an­legt sé að nefnd­ar­menn úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál starfi í hluta­starfi í ljósi þess hve langur með­al­af­greiðslu­tími mála er hjá nefnd­inni.

Ráðherra segir að mark­mið for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sé að með­al­máls­með­ferð­ar­tími kæru­mála sem lýkur með úrskurði verði 90 dagar. Starfs­hlut­fall nefnd­ar­manna sé eitt þeirra atriða sem munu koma til skoð­unar til að ná því mark­miði.

Enn fremur spyr Björn Leví hvaða sjón­ar­mið séu lögð til grund­vallar varð­andi for­gangs­röðun mála sem tekin eru til afgreiðslu hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. „Meg­in­reglan er sú að kærur fá afgreiðslu í þeirri röð sem þær ber­ast. Sú röð getur þó riðl­ast vegna tafa við gagna­öflun eða vegna umfangs og eðlis mála,“ segir í svar­inu. Við þetta megi bæta að reynt sé að hraða með­ferð kæru­mála fjöl­miðla eins og kostur er með hlið­sjón af hlut­verki þeirra í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár