Bankamenn mokgræddu á kjöri Trumps

Samkvæmt upplýsingum sem Wall Street Journal komst yfir hafa yfirmenn hjá Goldman Sachs, JP Morgan og Morgan Stanley mokgrætt á hlutabréfa­sölu eftir að Donald Trump var kjörinn forseti Banda­ríkjanna.

Stjórn­endur hjá Goldaman Sachs, JP Morgan og Morgan Stanley hafa mokgrætt á forseta­kjöri Donalds J. Trump, samkvæmt upplýsingum sem Wall Street Journal greindi frá því gær. Samkvæmt upplýsingum sem stjórn­endur hafa skilað inn til kaup­hallarinnar í New York hafa stjórn­endur banka á Wall Street samtals selt hlutabréf fyrir 100 milljónir Bandaríkja­dala, eða um 14 milljarða króna, frá því 8. nóvember þegar Trump var kjörinn. Þetta eru umfangsmestu viðskipti sem stjórn­endur í bönkum á Wall Street hafa átt á þessum tíma ársins, í meira en áratug.

Hlutabréf í bönkum á Wall Street hækkuð nokkuð skarpt eftir kjör Trumps en hann hefur þegar lofað því að draga verulega úr eftirliti með fjármála­fyrirtækjum á Wall Street og síðan lýsti hann því yfir í gær, á fundi með forstjórum stór­fyrirtækja, að hann ætlaði sér að lækka verulega skatta. Þá bað hann þá um að sjá til þess að fyrir­tækin myndu skapa störf í Banda­ríkjunum, en Trump skrifaði undir fyrir­skipun þess efnis í gær að Banda­ríkin myndu fara út tólf þjóða viðskipta­samninga­viðræðum sem kallast í daglegu tali TPP-viðræður.

Trump segir að Banda­ríkin hafi ekki hagnast neitt á þessum samningi og hann vilji frekar að fyrirtæki í Banda­ríkjunum haldi starfsemi sinni í landinu. „Nú verður hugsað um verka­mennina,“ sagði hann eftir að tilkynnt var um ákvörðun hans. Þingið á þó enn eftir að fjalla um hana og samþykkja hana.

Á meðal þeirra sem hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa eru hagsmuna­samtök bænda en að sögn Washington Post telja þau að samningurinn hefði tryggt aðgang að mörkuðum erlendis og að hags­munirnir séu um fjórir milljarða Bandaríkja­dala á ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár