Bjarni: Embættistaka Trumps gæti haft „ágæt áhrif á samskipti Íslands og Bandaríkjanna“

Bjarni Benediktsson, forsætis­ráðherra Íslands, vonar að embættis­taka Donald Trumps muni efla samband Íslands og Banda­ríkjanna.

„Ég á ekki von á því að þetta muni hafa neitt nema ágæt áhrif á samskipti Íslands og Banda­ríkjanna,“ sagði Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra í viðtali við Stöð 2 um helgina, aðspurður hvaða þýðingu embættis­taka Donalds Trump Bandaríkja­forseta hefði fyrir samband Banda­ríkjanna og Íslands. 

Bjarni sagði að Trump væri að mörgu leyti óvenju­legur forseti en að hann vonaði að samskipti Íslands og Banda­ríkjanna myndu halda áfram að blómstra á sem flestum sviðum. 

Donald Trump sór embættiseið í Washington á föstudag. Sama dag birti forsætis­ráðuneytið tilkynningu um að forsætis­ráðherra hefði, fyrir hönd ríkis­stjórnar Íslands, sent Trump heilla­óskir.

„Í bréfi sínu áréttar forsætis­ráðherra lang­varandi samvinnu og vina­samband þjóðanna, sem byggi á sömu gildum - virðingu fyrir frelsi, lýðræði, mann­réttindum og réttar­ríkinu,“ segir í tilkynningunni. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár