Ríkisendurskoðun segir að gjalda þurfi varhug vegna lána ríkissjóðs til Betri samgangna

Ríkis­sjóður fær heimild til að lána félagi sem stofnað var utan um uppbyggingu samgöngu­innviða á höfuð­borgar­svæðinu fjóra milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu. Ríkis­endurskoðun minnir á það sem gerðist með fjár­mögnun Vaðla­heiðarganga.

Skúli Eggert Þórðarson er ríkisendurskoðandi.
Skúli Eggert Þórð­ar­son er rík­is­end­ur­skoð­andi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Á fyrir­liggjandi fjárlögum er lántöku­heimild upp á allt að fjóra milljarða króna frá ríkis­sjóði til félagsins Betri samgangna ohf., sem stofnað var utan um uppbyggingu samgöngu­innviða á höfuð­borgar­svæðinu, á næsta ári.

Félagið var stofnað af rík­inu og sex sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að hrinda fram­kvæmdum við sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í fram­kvæmd, meðal annars lagningu Borgar­línu.

Áætl­aður kostn­aður á 15 árum er 120 millj­arðar króna og þegar samgöngu­sáttmálinn var undir­ritaður haustið 2019 var gert ráð fyrir að um helm­ingur hans yrði fjár­magn­aður með nýjum umferð­ar- og flýti­gjöld­um. Sveit­ar­fé­lögin áttu að borga 15 millj­arða króna og ríkið 45 millj­arða króna.

Ríkis­endurskoðun gerir lántöku­heimildina að umfjöllunar­efni í umsögn sinni um fyrir­liggjandi fjár­laga­frumvarp, sem nú er til meðferðar á Alþingi.

Þar vekur stofnunin athygli á að samgöngu­framkvæmdir sem ætlunin sé að fjármagna með öðrum hætti en með beinum framlögum úr ríkis­sjóði geti haft áhættu í för með sér fyrir ríkissjóð, ekki síst ef áætlanir um kostnað við framkvæmdir og tekjur vegna notkunar hafa ekki verið útfærðar og eru mikilli óvissu háðar.

Tekjur félagsins sem eigi að standa undir kostnaði þess séu annars vegar um þriggja milljarða króna föst árleg framlög eigenda og hins vegar ráðstöfun lands og hugsanlegum flýti- og umferðar­gjöldum sem séu reyndar ekki ennþá til staðar og erfitt sé að áætla hvenær og hversu hratt renni til félagsins. „Á fyrri hluta framkvæmda­tímabilsins sé því fyrirséð að brúa þurfi bilið á milli tekna og gjalda með lántöku frá ríkinu eða lánum frá öðrum með ríkis­ábyrgð.“

Gjalda þarf varhug

Í umsögninni rifjar Ríkis­endurskoðun upp gerð Vaðla­heiðarganga í þessu sambandi, en upphaf­lega var gert ráð fyrir að einka­aðilar myndu fjármagna gerð þeirra. Í raun var það forsenda þess að ákveðið var að ráðast í verkefnið. „Mál skipuðust hins vegar með þeim hætti að einka­aðilar töldu ávöxtun og áhættu verk­efnisins vera slíka að þeir treystu sér ekki til að lána fé til þess. Ríkis­sjóður stendur líklega núna frammi fyrir því að þurfa að gefa eftir hluta lána til félagsins í tengslum við fjárhags­lega endur­skipulagningu þess þrátt fyrir að ekki hafi verið gert ráð fyrir því þegar ríkið ákvað að stíga inn í verkefnið og tryggja framgang þess.“

Í umsögn Ríkis­endur­skoðunar segir að áhætta af lánveitingu ríkis­sjóðs minnki ekki ef aðrir aðilar en ríkið eru ráðandi um tilhögun þess og stýra í raun ferðinni, líkt og er í tilfelli Betri samgangna. „Gjalda þarf varhug þegar kemur að heimildum til lántaka með ábyrgð ríkisins þegar mikil óvissa ríkir um fjárhags­grundvöll þess verkefnis sem lána skal til.“

Átti að vera aðlaðandi fyrir fjárfesta

Íslenska ríkið ákvað á árunum 2009 og 2010 að kanna að ráð­ist yrði í gerð Vaðla­heið­­ar­­ganga í einka­fram­­kvæmd. Leitað var til íslenskra líf­eyr­is­­sjóða um að koma að fjár­­­mögnun verk­efn­is­ins en ekki náð­ist saman um slíkt. Því ákvað þáver­andi rík­­is­­stjórn Sam­­fylk­ingar og Vinstri grænna að verk­efnið yrði fjár­­­magnað af rík­­is­­sjóði til skamms tíma en síðar yrði leitað á almennan markað að lang­­tíma­fjár­­­mögn­un. Verk­efnið átti að verða aðlað­andi fyrir fjár­­­festa m.a. vegna þess að fjár­­­mögn­unin átti að verða rekstr­­ar­­lega sjálf­­bær með inn­­heimtu veggjalds.

Í júní 2012 sam­­þykkti Alþingi svo lög um gerð jarð­­ganga undir Vaðla­heiði. Í þeim fólst að rík­­is­­sjóður gat lánað allt að 8,7 millj­­arða króna til verk­efn­is­ins, á því verð­lagi sem var í lok árs 2011. Vextir á lán­unum voru allt að 3,7 pró­­sent og átti það fé að duga fyrir stofn­­kostn­aði. Sér­­stakt félag var stofnað utan um fram­­kvæmd­ina, Vaðla­heið­­ar­­göng ehf. Meiri­hluta­eig­andi þess félags með 66 prósent eignar­hlut er Greið leið ehf. sem er meðal annars í eigu Akur­eyr­­ar­bæj­­­ar, fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lags­ins KEA, Útgerð­­ar­­fé­lags Akur­eyr­inga og annarra minni sveitar­félaga á Norður­landi. Minn­i­hluta­eig­andi í félag­inu er íslenska ríkið, sem á 33 prósent. Gert var ráð fyrir að fram­­kvæmdum yrði lokið í árs­­lok 2016 og að ganga­gröftur myndi klár­­ast í sept­­em­ber 2015. Göngin voru á endanum opnum í desember 2018. Innheimt veggjöld hafa ekki staðið undir kostnaði við gerð þeirra.

Skulda ríkinu 18,6 milljarða

Í úttekt­ar­skýrslu ​um gerð Vaðla­heiða­ganga frá árinu 2017, sem unnin var að beiðni þáverandi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, var komist að þeirri nið­ur­stöðu að fram­kvæmdin gæti ekki talist eig­in­leg einka­fram­kvæmd. Í raun væri hún rík­is­fram­kvæmd þótt að upp­haf­lega hefði hún ekki verið kynnt sem slík til að hafi ekki þurft að lúta for­gangs­röðun sam­göngu­á­ætl­un­ar. Frá því að lög um gerð gang­anna voru sett hafi íslenska ríkið borið meg­in­á­hættu af Vaðla­heið­ar­göngum í formi fram­kvæmda­láns til verks­ins.

Skuldir Vaðla­heiðarganga við ríkissjóð voru 18,6 milljarðar króna um síðustu áramót og vaxta­gjöld á síðasta ári voru 932 milljónir króna. Gjalddagi skulda félagsins var 1. maí síðastliðinn en búið er að fresta innheimtu­aðgerðum á meðan að fjárhagsleg endur­skipulagning félagsins utan um framkvæmdina stendur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár