Segist leiðast „pólitískt mont“ og að Borgarlínan sé stærsti áfanginn á ferlinum

Í nýrri bók Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, „Nýja Reykja­vík“ rekur hann margt sem átti sér stað á bak­við tjöldin í stjórn­málum síð­ustu ára, og hefur ekki áður komið fram. Hann hrósar póli­tískum and­stæð­ingum, sér­stak­lega leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri hefur skrifað bók, „Nýja Reykja­vík“, þar sem hann birtir póli­tíska sýn sína, opin­berar fjöl­margt sem gerst hefur í bak­grunni póli­tískra ákvarð­ana og blandar saman við eigið per­sónu­lega líf. Í bók­inni fjallar hann meðal ann­ars um aðdrag­anda gerðar sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem inni­heldur full­fjár­magn­aða Borg­ar­línu, og hvernig þverpóli­tískt sam­starf hafi skilað því máli í höfn. Um hafi verið að ræða stærsta áfanga og mesta árangur sem Degi finnst hann hafa náð á öllum borg­ar­stjórn­ar­ferli sínum.

Hann segir að sér leið­ist póli­tískt mont og að það sé ótrú­legt hverju sé hægt „að ná fram ef maður skeytir ekki um hver fær heið­ur­inn“. Í því sam­hengi hrósar hann mörgum póli­tískum and­stæð­ingum sínum hástert, bæði þeim sem stýra núver­andi rík­is­stjórn og Sjálf­stæð­is­mönn­unum sem stýra nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur.

Í bók­inni nefnir Dagur sér­stak­lega að hann beri virð­ingu fyrir því að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafi tekið slag­inn í eigin hópi og staðið með sátt­mál­anum með umbóta­öfl­unum þar inni þrátt fyrir mik­inn mót­byr. Dagur talar ekki af jafn mik­illi virð­ingu um afstöðu borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks. „Umskipti í við­horfum, fram­tíð­ar­sýn og nýtt fólk í borg­ar­stjórn­ar­flokknum er í mínum huga for­senda þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði stjórn­tækur í meiri­hluta­sam­starf í borg­inni í náinni fram­tíð.“

Geymdu stórar ákvarðanir af tillitsemi við Sjálfstæðisflokkinn

Mikið er fjallað um Borg­ar­línu­verk­efnið í bók­inni og það mikla sam­starf sem Dagur hefur átt við bæj­ar­stjóra í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur um það, en þeir eru allir úr Sjálf­stæð­is­flokknum. Andstaða við verk­efnið hefur verið umtals­verð úr þeim flokki í Reykja­vík.

Borg­ar­línan rataði fyrst inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar 2016 og svo aftur ári síðar þegar núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks varð að veru­leika undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur.

Dagur segir að fljót­lega hafi orðið ljóst að rík­is­stjórn Katrínar ætl­aði að bíða með stórar ákvarð­anir um Borg­ar­línu þangað til eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018. „Þetta var án efa af til­lit­semi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­inni, þrátt fyrir ákvæði stjórn­ar­sátt­mál­ans og að Reykja­vík og hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væru sam­stíga í sinni afstöðu.“

Haustið eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, þar sem nýr meiri­hluti undir stjórn Dags var mynd­aður, hafi honum borist til eyrna að ný sam­göngu­á­ætlun væri að líta dags­ins ljós. Í drögum hennar hafi vantað fjár­magn í stór verk­efni í Reykja­vík og ekk­ert fjár­magn hafi verið ætlað í Borg­ar­línu nema í und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins.

Pólitísk hætta sem gæti leitt til slita á ríkisstjórn

Dagur ákvað að skrifa Katrínu og Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, langan, harð­orðan tölvu­póst. Tit­ill­inn var: „Alvarleg staða í sam­skiptum um sam­göngu­mál“.

Þar útlita­staði hann athuga­semdir sínar og áhyggjur og að alvar­leg­ast væri að Borg­ar­lína væri ekki fjár­mögnuð. „Ég lagði áherslu á tvennt: að sam­kvæmt grein­ingum SSH og Vega­gerð­ar­innar héldi tafa­tím­inn í umferð­inni áfram að lengj­ast og versna ef Borg­ar­lína yrði ekki að veru­leika. Hitt atriðið þótt mér ekki veiga­minna, að fót­unum yrði kippt undan sam­göngu­hluta lofts­lags­á­ætl­unar stjórn­valda ef þetta færi óbreytt í gegn.“

Dagur óskaði eftir fundi með ráð­herr­unum tveimur og var sá fundur boð­aður í snatri. „Á honum varð mér ljóst að ég hafði gert stór mis­tök. Með póst­inum hafði ég sent við­hengi, ítar­lega grein­ingu á stöð­unni að mati borg­ar­innar. Þar var hins vegar ekki aðeins að finna þær sam­göngu­grein­ingar sem sér­fræð­ingar SSH höfðu gert til að styrkja okkar mál­flutn­ing heldur einnig mat á samn­ings­stöðu ríkis og sveit­ar­fé­laga. Meðal ann­ars var þarna mat á póli­tískri hættu í mál­inu fyrir Katrínu og VG vegna lofts­lags­mála sem ég taldi að gæti leitt til slita á rík­is­stjórn­inni.“

Stærsti áfanginn á ferlinum

Borg­ar­línan rataði þó inn í sam­göngu­á­ætlun og í kjöl­farið hófst vinna við það sem varð að sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en hann tryggir aðkomu ríkis og sveit­ar­fé­laga á svæð­inu að stærstu sam­göngu­fram­kvæmdum þar á næstu ára­tugum, meðal ann­ars að gerð Borg­ar­línu. Áætlaður kostn­aður á 15 árum var 120 millj­arðar króna og var gert ráð fyrir að um helm­ingur hans yrði fjár­magn­aður með nýjum umferðar- og flýtigjöldum. Sveit­ar­fé­lögin áttu að borga 15 millj­arða króna og ríkið 45 millj­arða króna.

Á samgöngusáttmálanum sem tryggir tilurð Borgarlínu eru níu undirskriftir. Sex þeirra sem skrifuðu undir eru úr Sjálfstæðisflokknum.
Á sam­göngusátt­mál­anum sem tryggir til­urð Borg­ar­línu eru níu und­ir­skriftir. Sex þeirra sem skrif­uðu undir eru úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Þegar vinnan við gerð sam­göngusátt­mál­ans var á loka­metr­unum, og málið virt­ist vera í höfn, kom babb í bát­inn að sögn Dags. Fyr­ir­staðan í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks virt­ist hafa magn­ast. Til stóð að kynna málið opin­ber­lega 11 .sept­em­ber 2019 en þau áform sprungu í loft upp eftir að sam­komu­lagið var kynnt fyrir þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks.

Dagur segir að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi greini­lega verið í miklum vand­ræðum. „Hann sagði okkur að hann væri ekki viss um að hann kæmi þessu í gegnum þing­flokk­inn. Ég mat það við hann að vera svona hrein­skil­inn. Hann varð að fá fram breyt­ingar á plagg­inu.“

And­staðan sner­ist um hvernig ríkið ætti að fjár­magna verk­efnin, með umferðar- og flýtigjöldum. Bjarni lagði til að því yrði breytt á þann hátt að tekjur af eigna­sölu eða bein fram­lög yrðu nefnd í stað­inn. Þá vildu ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks fá Sunda­braut inn í sátt­mál­ann, en sú fram­kvæmd hafði verið í allt öðru ferli. Við því var orðið þótt fjár­mögnun hennar væri ekki tryggð með sátt­mál­anum og að útfærsla hennar lægi ekki fyrir.

Þetta dugði og skrifað var undir sátt­mál­ann rúmum tveimur vikum á eftir áætlun, þann 26. sept­em­ber 2019. „Þetta var ein­hver stærsti áfangi og mesti árangur sem mér fannst ég hafa náð á öllum borg­ar­stjórn­ar­ferli mínum,“ skrifar Dagur í bók­inni sinni.

Sigurður Ingi í sögubækurnar og Katrín á heiðurinn

Klofn­ing­ur­inn til máls­ins náði líka til borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þrátt fyrir að sex af níu und­ir­skriftum á sátt­mál­anum um sam­göngu­fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væru Sjálf­stæð­is­menn var borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn á móti. Þótt tveir full­trúar hans, Hildur Björns­dóttir og Katrín Atla­dóttir, styðji Borg­ar­línu hafi þær ekki treyst sér til að greiða mál­inu atkvæði.

Dagur segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi með þessu skilað auðu um fram­tíð­ina. „Hvernig ætlar hann eig­in­lega að gera sig aftur gild­andi í borg­ar­mál­unum?“

Hann seg­ist valið að hafa aldrei tekið undir þær raddir sem vildu eigna honum heið­ur­inn af því að koma Borg­ar­línu og sam­göngusátt­mál­ann á kopp­inn. „Mér leið­ist póli­tískt mont.[...] Það er ótrú­legt hverju er hægt að ná fram ef maður skeytir ekki um hver fær heið­ur­inn.“

Heið­ur­inn lægi ekki síður hjá bæj­ar­stjórum og bæj­ar­stjórnum nágranna­sveit­ar­fé­lag­anna og sam­starfs­flokkum hans í meiri­hlut­anum í Reykja­vík. „Það tókst sann­ar­lega að hefja þessi mál langt yfir flokkslínur og sveit­ar­fé­lags­mörk. Sigurður Ingi er líka í sögu­bæk­urnar sem sá sam­göngu­ráð­herra sem komið hefur hvað flestu í verk og það verður aldrei frá honum tekið. Ef for­ystu Katrínar og verk­stjórnar hefði ekki notið við væru þessi verk­efni heldur ekki á fljúg­andi ferð í und­ir­bún­ingi og í fram­kvæmd. Hennar er heið­ur­inn að því. Um það er ég sann­færður og verð henni ævin­lega þakk­látur fyrir vikið.“

Bjarni sýndi „ótvíræða leiðtogahæfileika“

Dagur segir að hann beri virð­ingu fyrir því að Bjarni tæki slag­inn í eigin hópi, stæði að þessum fram­sýna sátt­mála með umbóta­öfl­unum í eigin flokki og væri heils­hugar í þessu verk­efni innan fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og rík­is­stjórn­ar­innar, þrátt fyrir þann and­byr sem hann mætti innan eigin flokks. „Með því sýndi hann ótví­ræða leið­toga­hæfi­leika og tókst að halda dyrum flokks­ins í borg­inni opnum fyrir grænni fram­tíð. Umskipti í við­horfum, fram­tíð­ar­sýn og nýtt fólk í borg­ar­stjórn­ar­flokknum er í mínum huga for­senda þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði stjórn­tækur í meiri­hluta­sam­starf í borg­inni í náinni fram­tíð.“

Hildur Björnsdóttir, sem nú sækist eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, fær hrós frá borgarstjóra fyrir grein sem hún skrifaði í mars á þessu ári.
Hildur Björns­dóttir, sem nú sæk­ist eftir því að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík, fær hrós frá borg­ar­stjóra fyrir grein sem hún skrif­aði í mars á þessu ári.

Dagur hrósar í kjöl­farið Hildi Björns­dóttur, sem nú sæk­ist eftir því að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í næstu kosn­ingum og velta þar með Eyþóri Arnalds úr sessi, fyrir grein sem hún skrif­aði í Morg­un­blaðið í mars síð­ast­liðnum þar sem hún „jarð­aði“ mál­flutn­ing ýmissa tals­manna gam­alla úrræða í sam­göngu­málum þar sem bíl­inn væri í algjörum for­gangi. „Með þess­ari öfl­ugu grein gerði Hildur algjör­lega ljóst hvar hún stendur í afstöð­unni til stærstu spurn­ing­anna um sam­göngu­mál og þróun borg­ar­innar og kall­aði eftir hug­rekki til breyt­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár