Ráðuneytisstjórinn brýndi fyrir Sigríði að undirbúa málið betur

Ragnhildur Arnljóts­dóttir, settur ráðuneytis­stjóri í Lands­réttar­málinu taldi rannsókn og rökstuðning dómsmála­ráðherra ekki fullnægjandi með tilliti til reglna stjórnsýslu­réttar.

Ragnhildur Arnljóts­dóttir, settur ráðuneytis­stjóri dómsmála­ráðuneytisins við skipun Landsréttar­dómara, ráðlagði Sigríði Andersen eindregið að undirbúa betur tillögu sína til Alþingis um skipun dómara til að tryggja að rann­sóknin á hæfni dómara­efna stæðist reglur stjórnsýslu­réttar. Þetta kemur fram í tölvu­pósti ráðuneytis­stjórans til dómsmála­ráðherra sem frétta­skýringa­þátturinn Kveikur greindi frá í kvöld. 

Áður hafði Stundin birt sams konar ráðleggingar og athuga­semdir starfs­manna fjármála­ráðuneytisins og dómsmála­ráðuneytisins sem fylgdu gögnum sem stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fékk afhent frá dómsmála­ráðuneytinu þann 18. janúar. 

Í pósti Ragnhildar, sem er dagsettur 28. maí – daginn áður en Sigríður Andersen leggur tillögu sína um skipun Landsréttar­dómara fyrir Alþingi – fer hún yfir mögu­leikana í stöðunni.

Sá fyrsti sé að ráðherrann greini þinginu frá óánægju sinni með forsendurnar í mati dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómara­stöður, leggi fram frumvarp sem fresti málinu til 1. október og vísi því aftur til dómnefndarinnar með óskum um að dómara­reynsla fái aukið vægi í mati hennar. Annar möguleiki sé að ráðherra senda þinginu tillögur að breyttri uppröðun þar sem dómara­reynsla fái aukið vægi. Til þess þurfi vandaðan rökstuðning og er lögð sérstök áhersla á að leggja þurfi sams konar mat á alla umsækjendur. Í ljósi þess að það hafði ekki verið gert býðst ráðuneytis­stjórinn til að setja af stað vinnu í ráðuneytinu strax um kvöldið. 

Tölvu­póst­ur­inn sem Kveikur birti í kvöldHér má sjá skjá­skot af tölvu­póst­inum.

Sigíður Andersen dómsmála­ráðherra ákvað að gera ekki ítarlega rannsókn á hæfni umsækjenda í samræmi við ráðgjöfina sem hún fékk frá ráðuneytis­stjóranum og fleiri sérfræðingum í ráðuneytunum dagana á undan.

Eins og Hæstiréttur staðfesti þann 19. desember síðastliðinn braut ráðherra þannig lög og bakaði ríkinu miska­bótaskyldu gagnvart umsækjendum sem gengið var framhjá. Aðfinnslur Hæstaréttar voru í fullkomnu samræmi við lögfræði­ráðgjöfina sem Sigríður hunsaði.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár