Corbyn fær inngöngu í Verkamannaflokkinn á ný

Fyrr­verandi formaður breska Verkamanna­flokksins, sem vikið var tíma­bundið úr flokknum í október, er kominn aftur í hann. Ástæður fyrir upphaf­legu brott­vikningunni voru viðbrögð hans vegna skýrslu um gyðinga­andúð innan flokksins.

Jeremy Corbyn.
Jeremy Corbyn. Mynd: EPA

Jeremy Corbyn, fyrr­verandi formaður breska Verkamanna­flokksins, hefur fengið inngöngu í flokkinn að nýju. Sir Keir Starmer, eftir­maður Corbyn í formanns­stóli, vék honum úr flokknum 29. október síðastliðinn vegna viðbragða Corbyns við nýrri skýrslu frá mann­rétt­inda­sam­tök­unum EHRC, sem skoð­aði ásak­anir um gyð­inga­andúð innan flokks­ins.

Sam­tökin komust að þeirri nið­ur­stöðu að flokk­ur­inn, undir stjórn Corbyns, væri ábyrgur fyrir póli­tískum afskiptum af kvört­unum um gyð­inga­andúð frá félags­mönn­um, láðst að þjálfa starfs­fólk flokks­ins sem tók á móti slíkum kvört­unum á við­eig­andi hátt og sömu­leiðis gerst sekur um áreitni.

Corbyn greindi frá því í stöðu­uppfærslu á Facebook í kvöld að hann hefði hlotið inngöngu í flokkinn á nýjan leik.

Hann þakkaði flokks­mönnum, meðlimum verkalýðs­félaga og stuðnings­mönnum sínum fyrir að hafa staðið með sér og sagði hreyfinguna nú þurfa að sameinast gegn þeirri „mjög eyði­leggjandi ríkis­stjórn Íhalds­flokksins“ sem fer með stjórn Bretlands um þessar mundir.

Í frétt Guar­dian af málinu, sem birt var þegar Corbyn var vikið tíma­bundið úr flokknum, sagði að Cor­byn hafi brugð­ist við umrædrri skýrslu með þeim orðum að mál tengd gyð­inga­andúð innan Verka­manna­flokks­ins hefðu verið blásin upp í póli­tískum til­gangi, bæði af and­stæð­ingum innan flokks og utan og fjöl­miðl­um.

Cor­byn sagði þó jafn­framt að hver sá sem segði að enga gyð­inga­andúð væri að finna innan flokks­ins hefði rangt fyrir sér og að hann von­að­ist til þess að flokk­ur­inn myndi inn­leiða ráð­legg­ingar frá skýrslu­höf­undum hratt og örugg­lega, þrátt fyrir að hann væri ekki sam­mála öllum nið­ur­stöð­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár