Kom eins og stormsveipur

Kobe Bryant var fyrirmynd ungra íþrótta­iðkenda. Hann lagði sig fram um að tengjast fyrir­myndum í ólíkum íþrótta­greinum, til að hafa jákvæð áhrif um allan heim. Körfubolta­heimurinn er í sjokki eftir andlát hans.

Allt í einu kom 17 ára gamall leikmaður eins og stormsveipur inn í NBA deildina, og sýndi fljótt að hann hafði óvenju­lega hæfileika. Kobe Bryant er í fámennum hópi körfubolta­manna í sögunni, sem kom beint úr High School - Lower Merion High School í Philadelphia - inn í NBA deildina.

Einhver neisti fylgdi hans leik frá byrjun; hann var alveg óttalaus, óð áfram og sveif um eins og hann ætti auðveldara að athafna sig í loftinu en í öðrum aðstæðum.

Það er erfitt að skýra það út fyrir fólki, sem ekki þekkir vel til þess hvernig íþrótta­heimurinn í Banda­ríkjunum virkar, hversu mikið afrek það er að koma beint úr High School inn í deild þeirra bestu, og hafa jafn mikil áhrif á körfu­bolta sem íþrótt og hann hafði. Þúsundir leikmanna reyna að komast inn í deildina ár hvert, þegar nýliða­valið fer fram, en fáir eru valdir úr stórum hópi - og það að koma beint úr High School, er ekki á færi nema þeirra sem eru með sérstaka og fáséða hæfileika.

En viðbrögð nú - þegar hann er látinn - segja ákveðna sögu. Fólk trúir því varla að hann sé látinn. Hann var ódauð­legur í huga margra.

Hann var dýrlingur í Los Angeles, þar sem hann spilaði allan sinn fer - frá 1996 til 2016 - eftir að hann kom til félagins frá Charlotte Hornets, sem valdi hann í nýliða­valinu en skipti honum til LA nær samstundis.

Bryant var einn þeirra sem hafði ekki aðeins óvenju­lega líkamlega hæfileika sem körfubolta­maður, heldur var hann einnig fram­úrskarandi í öllum hliðum leiksins. Umfram allt einkenndist ferill hans af því að vera liðsmaður og leiðtogi LA Lakers. Hann var 18 sinnum valinn í stjörnulið deildarinnar, vann NBA titilinn fimm sinnum, var í tvígang besti leikmaður úrslita­keppninnar, besti leik­maðurinn (MVP) árið 2008 og svo mætti lengi telja. Hann vann troðslu­keppnina 1997 og var með svið­ljósið á sér - skært og áberandi eins og LA er von - frá fyrsta degi.

Bryant hafði mikil áhrif á íþróttir, og lagði sig fram um að tengjast íþrótta­fólki í ólíkum íþrótta­greinum um allan heim - í von um að geta nýtt frægð sína og störf, til að örva íþrótta­iðkun fólks, ekki síst kvenna og ungmenna.

Gianna, dóttir hans, lést með honum í þyrlu­slysinu í gær, en þau voru á leið í leik með skólaliði hennar - þar sem Kobe var þjálfari. Í nýlegu viðtali við CNN talaði Kobe mikið um að konur myndu spila í NBA deildinni einn daginn, og að margar þeirra bestu hefðu nú þegar getu til þess.

Þá var aðdáun hans á evrópskum fótbolta þekkt. Hann talaði ítölsku reip­rennandi, eftir að hafa búið í Rieti á Ítalíu sem krakki, en faðir hans - Joe Bryant - lék þar körfu­bolta sem atvinnu­maður í tvö ár, eftir að hafa lokið ferli sínum í NBA deildinni. Hann sagði jafnan, að Ítalía væri hans annað land og að góðar æsku­minningar væru ekki síst frá þessum fallega stað.

Þegar hann hætti að spila, árið 2016 - eftir ótrúlegan 20 ára feril - snéri hann aftur í heimsókn til Ítalíu, og gamlar heima­slóðir í Reggia Emilia, og talaði um hversu dásam­legur staður þetta væri. „Hér byrjaði mín saga,“ sagði hann, og heillaði frétta­menn og viðstadda upp úr skónum, þegar hann talaði á ítölsku. Borgar- og bæjar­yfirvöld á þessu svæði á Ítalíu hafa minnst hans, eftir að andlát hans var staðfest, og sagt að hann hafi verið sannur vinur svæðisins.

Í þyrsluslysinu létust 9 manns, þar af var vinur Kobe Bryant, John Altobelli, körfubolta­þjálfari til áratuga, eiginkona hans Keri og dóttir þeirra, sem var vinkona Giönnu og liðs­félagi í skólaliði þeirra. Þá hefur verið staðfest að aðstoðar­þjálfari skóla­liðsins, Christina Mauser, hafi einnig látist. Rannsókn er nú hafin á slysinu og aðdrag­anda þess, en talið er að allir hafi látist samstundis þegar þyrlan hrapaði til jarðar.

Kobe, sem var 41 árs, lætur eftir sig eiginkonu, Vanessu, og þrjár dætur.

Það síðasta sem Kobe Bryant sendi frá sér á Twitter, áður en hann lést, voru hamingju­óskir til Lebron James, fyrir að hafa komist fram úr honum á lista yfir þá stiga­hæstu í deildinni.

Kobe var þekktur fyrir að æfa mikið, leggja mikið á sig til að verða sá besti, bæði í vörn og sókn. Hann sagði jafnan að hann hefði ekki fæðst með neina hæfileika, heldur lagt mikið á sig til að ná eins langt og hann náði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár