Núll-stefnan loks frá og COVID-bylgja á uppleið

Eftir að hörðum aðgerðum vegna COVID-19 var loks aflétt í Kína nýverið hóf bylgja smita að rísa. Tugþúsundir gætu látist.

Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí.
Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí. Mynd: EPA

Bálstofur vítt og breitt um Kína eiga orðið í mestu erfið­leikum með að anna eftir­spurn þar sem líkum nánast rignir inn í kjölfar stórrar bylgju af dauðsföllum vegna COVID-19. Heilbrigðis­yfirvöld eiga að sama skapi í vandræðum með að anna eftir­spurn sjúkra. Reynt er að koma fyrir sem flestum sjúkra­rúmum á spítölum og setja upp aðstöðu til að taka á móti fólki til greiningar.

Eftir að hörðum samkomu­takmörkunum vegna kórónu­veirunnar var aflétt í Kína er COVID-19 að sækja verulega í sig veðrið meðal þjóðar sem er lítið bólusett, telur 1,4 milljarða manna í víðfeðmu landi þar sem erfitt getur reynst að veita heilbrigðis­þjónustu. Ástandið virðist þó enn sem komið er verst í borgunum, m.a. í Peking. Þar anna bálstofur og líkhús þó enn eftir­spurn en í öðrum borgum, m.a. Chongqing, þar sem 30 milljónir búa, er allt orðið yfirfullt og ekki hægt að taka við fleiri líkum að svo stöddu.

Flestir eru á því að skýringin á auknum fjölda andláta tengist COVID-19 en yfirvöld í Kína eru þó ekki á því. Þau segja að á þriðjudag hafi orðið þrjú staðfest andlát vegna sjúk­dómsins og að um væri að ræða fyrstu dauðsföllin vegna hans í fleiri vikur.

Raun er það svo að frá því að heims­faraldur COVID-19 braust út hafa aðeins 5.242 manneskjur látist af völdum hans samkvæmt opinberum tölum. Það er langan veg frá því sem gerst hefur í öðrum ríkjum heimsins.

Þess vegna efast flestir um að þetta sé rétt og telja að andlátin séu miklu fleiri.

Frá því að núll-stefnan svokallaða, það er að segja að stefna að engu smiti af kórónu­veiru í landinu með mjög hörðum takmörkunum, var aflétt nýverið hafa sjúkrahús yfir­fyllst af fólki og hillur apóteka standa tómar. Þetta tvennt þykir sterk vísbending um að eitthvað meiriháttar sé á seyði og flestir benda á kórónu­veiruna.

Í frétta­skýringu Al Jazeera um málið er haft eftir sérfræðingum í smit­sjúkdómum að um 60 prósent kínversku þjóðarinnar eigi eftir að sýkjast af COVID-19 á næstu mánuðum. Þá telja þessir sömu sérfræðingar að um 2 milljónir gætu látist.

Ríkis­rekna dagblaðið Global Times afneitar ekki smit­bylgjunni nú en hefur eftir sínum sérfræðingum að um 2,7 milljónir Kínverja gætu þurft á gjörgæslu­innlögn að halda á næstu mánuðum. Þess vegna væru sjúkrahús að efla starfsemi sína, m.a. með því að stækka gjörgæslu­deildir. Í borginni Guangzhou á til að mynda að fjölga gjörgæslu­rýmum úr 455 í 1.385. Þá segir dagblaðið að búist sé við því að bylgjan nái hámarki snemma í janúar.

Einnig hefur blaðið eftir heimildar­mönnum sínum að koma eigi fyrir greiningar­stöðvum víðs vegar í borgum, m.a. á íþrótta­leikvöngum. Í Shanghai hefur verið komið upp yfir 2.500 básum þar sem fólk getur látið mæla hita og farið í PCR-próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár