Efnahagslegar refsiaðgerðir ekki beitt vopn

Forstöðu­maður Hagfræði­stofnunar HÍ segir að refsi­að­gerðir vestrænna ríkja muni sennilega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráðamanna í Rússlandi einar og sér. Þegar fram líða stundir muni Rússar geta aðlagast aðgerðunum og fundið sér nýja markaði.

Refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu munu sennilega skipta litlu máli fyrir gang stríðsins, þar sem venjulega dregur úr biti slíkra aðgerða ef þeim er beitt lengi. Þetta segir Sigurður Jóhannesson, forstöðu­maður Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Samkvæmt Sigurði hefur æ oftar verið gripið til viðskipta­þvingana á síðustu eftir lok seinni heims­styrjaldarinnar, enda séu efnahagslegar refsiaðgerðir oft ákjósanlegri en hernaður í huga flestra. Fyrst um sinn stunduðu einkum Bandaríkja­menn slíkar aðgerðir gegn öðrum þjóðum, en þegar leið að aldamótum voru Sameinuðu þjóðirnar og Evrópu­sambandið einnig farin að beita þeim.

Sigurður bendir líka á samantekt um 200 refsiaðgerðir sem var beitt á síðustu öld, en samkvæmt honum hafði meirihluti þeirra engin áhrif á stefnu landa sem þær beinast gegn. Árangurinn væri þeim mun minni sem meira væri í húfi, en þegar aðgerðum er beint að stríðs­rekstri voru einungis 20 prósent líkur á að þær hefðu áhrif.

Einnig bendir Sigurður á að mesti krafturinn fari jafnan úr refsiaðgerðum eftir eitt til tvö ár. Þá hafi löndin sem refsað er oftast fundið nýja viðskipta­vini í stað þeirra sem standa fyrir aðgerðunum.

„Vestræn ríki grípa núna til víðtækari refsinga en áður,“ segir Sigurður. „ Þær valda meiri óþægindum fyrst um sinn, en óþægindin minnka með tímanum og Rússar munu sennilega þola þau,“ bætir hann við.

Samkvæmt honum dregur það úr biti aðgerð­anna að fjölmargar þjóðir taka ekki þátt í þeim, og því geti Rússar fundið sé nýja markaði. Ekki virðist hafa komið til tals að Mið-Evrópu­þjóðir hætti að kaupa olíu og gas af Rússum og því muni núverandi refsiaðgerðir vestrænna ríkja sennilega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráðamanna í Rússlandi.

Hægt er að lesa grein Sigurðar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár