Tíu þúsund manns skrifað undir áskorun til Útlendingastofnunar

Útlendinga­stofnun ákvað að veita farlama föður og ellefu ára dóttur hans ekki áheyrn og hefur vísað þeim til Þýska­lands á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar. Rúmlega 10 þúsund manns hafa skorað á Útlendinga­stofnun að veita afgönsku feðginunum áheyrn.

Í afmælisveislunni
Í afmæl­is­veisl­unni Feðginin voru að vonum mjög kát með afmæl­is­veisl­una sem lukk­að­ist vel.

Útlendinga­stofnun synjaði að taka hælis­umsókn feðginanna Abrahims Maleki og ellefu ára gamallar dóttur hans, Hanyie, til efnis­meðferðar. Feðginin eru afgönsk og þurftu að leggja í hættulega för til að komast hingað til lands. Þá glímir Abrahim við bæklun á fæti sem hefur það í för með sér að litla stúlkan hefur þurft að annast föður sinn og sjá um húsverk og annað heimilis­hald. Rúmlega 10 þúsund undir­skriftir hafa safnast þar sem krafist er að feðginin fái áheyrn hjá stjórn­völdum

Abrahim Maleki og ellefu ára gömul dóttir hans, Hanyie, geta átt von á því að verða send úr landi hvenær sem er. Útlendinga­stofnun hafnaði því að veita feðginunum efnis­meðferð og staðfesti kærunefnd útlendinga­mála þá niður­stöðu. Stundin fjallaði ítarlega um sögu og stöðu feðginanna.

Fyrir undir­skrifta­söfnuninni standa Solaris, hjálpar­samtök fyrir hælis­leitendur og flótta­fólk á Íslandi og hafa þegar fréttin er skrifuð 10,697 undir­skriftir safnast. „Við biðlum til ykkar að aðstoða okkur með að skora á stjórn­völd að hætta að misnota Dyflinnar­regluna, virða mann­réttindi og veita Abrahim og Hanyie áheyrn í þeirra máli. Þau hafa mátt þola nóg,“ segir meðal annars í áskoruninni.

Vísað brott þrátt fyrir viðkvæma stöðu

Útlendinga­stofnun hafnaði því, sem fyrr segir, að taka umsókn Abrahims og Hanyie um alþjóð­lega vernd á Íslandi til efnis­meðferðar. Var sú ákvörðun staðfest af kærunefnd útlendinga­mála. Niður­staða stofnunarinnar var sú að Abrahim og Hanyie væru ekki talin í sérstak­lega viðkvæmri stöðu. Þau skyldu yfirgefa Ísland og bæri að senda þau til Þýska­lands.

Hins vegar komst kærunefnd útlendinga­mála að þeirri niður­stöðu að feðginin væru í sérstak­lega viðkvæmri stöðu. Þrátt fyrir það var ekki fallist á að taka mál þeirra til efnis­meðferðar. Þau geta því átt von á því að verða flutt á brott hvenær sem er á næstu dögum, en þeim var tilkynnt að þau yrðu látin yfirgefa landið í síðasta lagi þann 19. júlí, fyrir rúmum tveimur vikum síðan.

300 manns mættu í afmælisveislu Hanyie

Í ljósi þess að feðginunum bíða þau örlög að vera send úr landi var ákveðið að láta heitustu ósk Hanyie rætast, að fá að halda upp á afmælið sitt hér á landi. Veislan fór fram í síðustu viku en Hanyie á afmæli í október. Þetta gekk von­um fram­ar og var al­veg æðis­legt. Það var mik­ill stuðning­ur og kær­leik­ur,“ sagði Guðmund­ur Karl Karls­son, einn skipu­leggj­enda veislunnar við mbl.is.

Mikill fjöldi manns mætti í veislunna sem haldin var á Klambra­túni. Ókunnugir og vinir færðu Hanyie góðar gjafir en hún fékk til dæmis Iphone-síma og um 600 þúsund krónur. Það mun­ar auðvitað því­líkt um það, sér­stak­lega þegar maður á ekki neitt,“ sagði Guðmund­ur við mbl.is. „Það er klárt mál að þetta er pen­ing­ur sem mun nýt­ast vel.“

Líklega send til Afganistan

Fyrir fjórum vikum var á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar ákveðið að senda feðginin til Þýska­lands. Þar er nærfullvíst að þau verði send til Afganistan. Þar á Hanyie engin tengsl önnur en þjóðerni foreldra sinna og hefur aldrei búið þar. Hún var fædd í flóttamanna­búðum í Íran árið 2005 en móðir hennar yfirgaf hana ári síðar. Allt sitt líf hefur hún verið á flótta og hefur hann oft reynst háska­legur. Þá hefur Abrahim verið á flótta í nærfellt tvo áratugi. Þau óska þess einskis frekar en að fá að fá hæli hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár