Kenna vinstristjórninni um 25 ára reglu hægristjórnarinnar

„25 ára og eldri er ekki meinaður aðgangur að nokkru bóknámi í framhalds­skólum,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar, á Alþingi í dag.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, hafnar því að nokkur 25 ára regla hafi verið sett á síðasta kjör­tímabili. „25 ára og eldri er ekki meinaður aðgangur að nokkru bóknámi í framhalds­skólum,“ sagði hún í umræðum undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. 

Ákveðið var við samþykkt fjárlaga ársins 2015 að gera ráð fyrir fækkun framhalds­skólanema og hætta að greiða fyrir bóknám þeirra sem eru 25 ára og eldri. Þessi stefna hefur sætt harðri gagnrýni undan­farin ár og gengið undir nafninu „25 ára reglan“ í fjöl­miðlum og á vettvangi stjórn­málanna.

Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar og formaður velferðar­nefndar Alþingis, kallaði eftir því í viðtali á sunnudag að reglan yrði afnumin. Málflutningur tveggja þingmanna Sjálfstæðis­flokksins á Alþingi í dag bendir ekki til þess að Nichole verði að ósk sinni í nánustu framtíð. 

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, vakti athygli á málinu á þinginu og gagnrýndi stefnu fyrri ríkis­stjórnar.

„Þarna var tekin pólitísk ákvörðun sem hafði þær afleiðingar, ef marka má þau gögn sem liggja fyrir, að nemendum yfir 25 ára aldri fækkaði um 742 milli áranna 2014 og 2015,“ sagði hún og benti á að formaður velferðar­nefndar hefði kallað eftir afnámi reglunnar í sjónvarps­viðtali.

„Hátt­virtur þingmaður Nichole Leigh Mosty sagði að hún vildi afnema þessa reglu. Björt framtíð hafi sóst eftir því við gerð stjórnar­sáttmála að á því yrði tekið, enda hafi ekki komið til þess að þessum nemendum hafi verið boðnir einhverjir aðrir valkostir nema þeir sem miklum mun dýrari eru en nám í framhalds­skóla. Mig langar að spyrja hátt­virtan formann allsherjar- og menntamála­nefndar: Er það Sjálfstæðis­flokkurinn sem stendur í vegi fyrir því að þessi ákvörðun verði endur­skoðuð? Hefur þetta verið rætt innan þing­flokka meiri hlutans?“

Katrín sagðist mundu fagna því af heilum hug ef sú ákvörðun yrði tekin að halda áfram að tryggja öllum nemendum vist í framhalds­skóla eins og tíðkaðist allt til ársins 2014 þrátt fyrir að lengur hefði verið í gildi reglugerð um forgang nemenda. „Þekki ég nú þetta mál ágætlega þar sem ég undir­ritaði þá reglugerð sjálf,“ sagði hún og tók sérstak­lega fram að hún væri ekki að spyrja Áslaugu um reglu­gerðina sjálfa heldur pólitíska ákvörðun fyrri ríkis­stjórnar um fjár­veitingar hins opinbera vegna náms þeirra sem eru 25 ára og eldri. 

Áslaug Arna svaraði með því að spyrða ákvörðun síðustu ríkis­stjórnar saman við reglugerð Katrínar og segja að með því að hætta fjár­veitingum vegna framhalds­skóla­menntunar 25 ára og eldi hefði einungis verið skerpt á forgangs­röðun vinstri­stjórnarinnar.

„Það hefur gætt misskilnings í umræðunni um að einhver slík regla hafi verið sett“

„Það er alltaf gott og mikilvægt að ræða mennta­málin. Það hefur gætt misskilnings í umræðunni um að einhver slík regla hafi verið sett, af því að 25 ára og eldri er ekki meinaður aðgangur að nokkru bóknámi í framhalds­skólum. Auðvitað er verið að byggja á, eins og hv. þingmaður nefnir, sinni forgangs­röðun síðan hv. þingmaður var menntamála­ráðherra og eina sem hefur gerst síðan er að skerpt hefur verið á þeirri forgangs­röðun. Þar horfum við líka til hinna norrænu ríkjanna sem eru með miklu strangari reglu um 25 ára í sínum framhalds­skólum,“ sagði Áslaug Arna og bætti við: 

„Ég held að mikilvægt sé að hugsa til þess af hverju og hvernig viljum við mæta þörfum nemenda sem eru 25 ára og eldri. Af hverju er mest brottfall hjá þeim nemendum og hefur verið um langa hríð? Jú, af því að, virðulegi forseti, skólinn, námsefnið og kennslu­aðferðirnar er miðað að fólki á aldrinum 16–20 ára og það hentar einfald­lega ekki fólki á þrítugs- eða fertugsaldri að sitja á skólabekk með börnum sem hafa nýlokið í grunn­skóla. Við þurfum að mæta þörfu þeirra og byggja upp kerfi, eins og verið er að gera, fyrir fólk sem vill sækja sér menntun á þessum aldri, taka meira tillit til t.d. vinnu­reynslu og meta hana inn í. Nú höfum við farið úr því að setja 600 milljónir í að setja um 1,5 milljarða inn í það fullorðins­kerfi sem er svo mikilvægt til að mæta þörfum þessara nemenda.“

Þá sagði Áslaug mikilvægt að margir kostir stæðu nemendum til boða. „Það er tekið við nemendum á öllum aldri á starfs­námsbrautir, þetta á ekki við um iðn- og verknám. Við þurfum þá bara að ræða þá forgangs­röðun. Ef hátt­virtum þingmanni finnst að við eigum ekki fara eftir hennar eigin forgangs­röðun þá getum við rætt það og alveg sjálfsagt að gera það. Virðulegi forseti. Það er mín skoðun að brýnt sé að við mætum þörfum allra nemenda og það er gert með því að fram­fylgja forgangs­röðun háttvirts þingmanns Katrínar Jakobs­dóttur og gera námið þannig að það henti öllum aldurs­hópum.“ 

Valgerður Gunnars­dóttir, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, kom upp skömmu síðar og talaði með sama hætti og Áslaug Arna. Sagði hún að með því að hætta fjár­veitingum til framhalds­skólanema 25 ára og eldri væri eingöngu verið að fram­fylgja reglugerð Katrínar. „Hvaða tilgangi þjónaði sú forgangs­röðun sem var sett með reglugerð sem hæstv. menntamála­ráðherra ritaði undir eigin hendi á þeim tíma? Það sem verið er að gera núna er eingöngu að fram­fylgja þessari reglugerð“ Tekið skal fram að hvergi í umræddri reglugerð er kveðið á um að ekki skuli greiða fyrir framhalds­skóla­menntun þeirra sem eru 25 ára og eldri. 

Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata og framhalds­skóla­kennari til margra ára, lagði orð í belg. Hann sagðist hafa ætlað að fjalla um fjarveru umhverfis­ráðherra í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í gær en nú fyndi hann sig knúinn til að taka þátt í umræðunni um 25 ára regluna. „Mér blöskrar ýmislegt sem hér hefur verið sagt. Mér blöskrar sú vanþekking sem hátt­virtur þingmaður Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir hefur sýnt að hún hefur á íslensku framhalds­skólakerfi, að það henti ekki fólki á þrítugs- eða fertugsaldri að sækja skóla með yngri nemendum. Þvílíkur þvættingur,“ sagði hann. 

„Mér blöskrar sú vanþekking sem hátt­virtur þingmaður Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir hefur sýnt að hún hefur á íslensku framhalds­skólakerfi“

„Sá sem hér stendur hefur starfað við það í 18 ár að kenna í þremur framhalds­skólum. Tveir þeirra voru iðnskólar, verk­mennta­skólar, annar á Sauðár­króki og hinn á Akureyri. Ég kenndi nemendum sögu, þýsku og íslensku. Bestu nemendurnir voru konur og karlar sem voru komin yfir 25 ára aldur,“ sagði Einar.

„Þetta voru í sumum tilfellum konur sem voru á þeim stað í lífinu að börnin voru hætt að nota bleiur og annað slíkt, komin í skóla, orðin kannski að einhverju leyti sjálfala og sjálfum sér nóg, þær komu inn í skólana og lærðu á bóknáms­brautum það sem þær langaði til að læra. Sama var með karl­peninginn. Sumir þeirra voru reyndar oft og tíðum í iðnnámi, en alls ekki alltaf. Margir þeirra voru á bóknáms­brautum.Í samtali mínu við aðstoðar­skóla­meistara Verk­mennta­skólans á Akureyri, og ég tek það fram að ég hef leyfi hans til þess að vitna í hann hér, kom fram að nemendum hafi verið vísað frá bóknámi í Verkmennaskólanum á Akureyri vegna þess að þeir voru orðnir 25 ára. Punktur. Það er óþolandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár