Nýrnaveiki í eldislaxi leiðir til laxadauða og taps fyrir Arnarlax

Norskt móður­félag Arnarlax á Bíldudal segir nýrna­veiki hafa sett stórt strik í reikninginn hjá fyrir­tækinu í ár. Arnarlax hefur glímt við nýrna­veikina frá því í fyrra­haust. Víkingur Gunnars­sonar neitar að ræða nýrna­veikina og segir hana vera smámál þrátt fyrir umfjöllun norska móður­félagsins um skakka­föllin vegna smit­sjúkdómsins.

Neitar að tjá sig um opinberar upplýsingar
Neitar að tjá sig um opin­berar upp­lýs­ingar Víkingur Gunn­ars­son neitar að tjá sig um upp­lýs­ingar um nýrna­veiki og laxa­dauða hjá fyr­ir­tæk­inu sem norskt móð­ur­fé­lag Arnarlax opin­ber­aði í dag. Hann sést hér á tali við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttir hjá SFS á sjáv­ar­út­vegs­sýn­ingu í Brussel.

Nýrna­veiki hefur sett stórt strik í reikninginn í starfsemi laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax í Arnar­firði á þessu ári og leitt til mikils dauða á eldislaxi hjá fyrir­tækinu. Þetta kemur fram í árshluta­uppgjöri móður­félags Arnarlax, Salmar AS, sem gert var opinbert í morgun. Salmar er eitt stærsta laxeldis­fyrirtæki Noregs og á 34 prósenta hlut í Arnarlaxi.  Í sérstökum kafla í árshluta­uppgjörinu er fjallað um starfsemi Arnarlax nýrna­veikina sem fyrir­tækið hefur barist við á árinu og allt frá því í fyrra­haust. 

Orðrétt segir í árshluta­uppgjörinu: „Kostnaður við lífmassann [eldis­laxinn] sem var ræktaður var á þriðja ársfjórðungi varð fyrir neikvæðum afleiðingum vegna líffræðilegra þátta, þar með talið hærri dánar­tíðni, meðal annars vegna fiskisjúkdómsins BKD, nýrna­veiki.“ Þessar upplýsingar um nýrna­veikina og dánar­tíðni eldislaxa Arnarlax á þriðja ársfjóðrungi 2017 hafa ekki komið fram áður en Salmar As virðist telja að brýnt sé að halda þessum upplýsingum til haga. 

 Tekjutap út sjúkdómnum

Fram kemur í uppgjörinu að tekjur Arnarlax hafi dregist saman frá 198 milljónum norskra króna á öðrum ársfjórðungi og niður í 113,8 milljónir norskra króna á þriðja ársfjórðungi 2017, meðal annars vegna nýrna­veikinnar. Þá fór hagnaður Arnarlax fyrir fjármagns­liði úr 26 milljónum norskra króna á öðrum ársfjórðungi og niður í mínus 4,8 milljónir norskra króna. 

„Ég ætla ekki að tala um þetta“

Víkingur Gunnarsson, framkvæmda­stjóri Arnarlax, neitar að tjá sig um nýrna­veikina og þær upplýsingar sem fram koma í árshluta­uppgjöri Salmar. Norska félagið gefur því meiri upplýsingar um nýrna­veikina en íslenska dóttur­félagið. „Mér finnst þú skrifa um laxeldið á mjög eins­leitan hátt og mér finnst eins og þú sért á móti þessari grein. Þannig að ég ætla bara ekkert að tjá mig um þetta. Þú getur bara skrifað það sem þú vilt. Þetta er ekki stórmál og ekki viðkvæmt mál. Ég ætla ekki að tala um þetta. Takk fyrir að hringja,“ segir Víkingur.  

Glímt við veikina í heilt ár

Frétta­tíminn greindi frá því ársbyrjun að nýrna­veiki hefði komið upp hjá Arnarlaxi en þessi sjúkdómur er einn helsti sjúk­dómurinn sem komið getur upp í laxeldi og getur verið erfitt að eiga við hann. Löxum sem sýkjast af nýrna­veikinni er slátrað og þeim fargað líkt og gert var hjá Arnarlaxi og Arctic Sea Farm síðastliðið haust samkvæmt frétt Frétta­tímans. Þar sagði að slátra hefði þurft 200 tonnum af eldislaxi vegna sjúk­dómsins en sá fiskur er svo keyrður til Borgar­fjarðar þar sem hann er urðaður hjá sorp­hreinsistöð Borgar­fjarðar. 

Nýrna­veikin smitast frá villtum laxi yfir til eldislaxsins þó villtir laxar beri ekki smiteinkenni sem eldis­laxarnir bera. Sjúk­dómurinn sýnir að eldis­laxinn hjá Arnarlaxi hefur komist í návígi við villtan lax og getur slíkt samneyti falið í sér hættu á erfðablöndunun á milli villta íslenska laxisins og norska eldislaxsins sem notaður er í eldinu á Íslandi. Nýrna­veikin getur orðið svo skæð að dæmi er um að laxeldis­fyrirtæki hafi orðið gjald­þrota þegar hún hefur komið upp samkvæmt Matvæla­stofnun Íslands. 

Árshluta­uppgjör Salmar As má nálgast hér.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár