Trump kallaði fjölmiðlafólk á teppið í Trump-turninum

Donald J. Trump, sem tekur við sem forseti Banda­ríkjanna í janúar á næsta ári, kallaði fjölmiðla­fólk í Banda­ríkjunum á teppið í Trump-turninum við 59. stræti í New York í kvöld, og húðskammaði það fyrir að fjalla ekki nægilega vel um sig.

Á fundinn mættu meðal annars Martha Raddatz og David Muir frá ABC sjónvarps­stöðinni, Charlie Rose, Lester Holt og Wolf Blitzer. Samkvæmt frásögn New York Times, gagnrýndi Trump fólkið á fundinum harðlega, en í boðun til fundarins var sérstak­lega áréttað um að einkafund væri að ræða.

Í umfjöllun New York Times segir að Trump hafi sérstak­lega gagnrýnt Jeffrey A. Zucker, yfirmann CNN, og sagt ítrekað: „Þetta var allt rangt hjá ykkur (You got it all wrong)“.

Fundurinn er sagður hafa verið algjör­lega fordæma­laus, og í engu líkur öðrum fundum þar sem fjölmiðla­fólk hefur fengið rými til að ræða við forsetann eða starfs­fólk hans á lokuðum fundum (off the record). Þeir séu jafnan til þess eins að efla tengsl eða að fá upplýsingar um einstök mál.

Þessi fundur var hins vegar öðruvísi, eins og margt annað sem tengist kosningunum í Banda­ríkjunum.

Trump vinnur nú að því að setja saman lið sitt áður en hann tekur við stjórnar­taumunum í Hvíta húsinu í janúar. Mikil fundarhöld hafa farið fram á skrif­stofu hans í Trump Tower í New York. Turninn frægi er skammt frá höfuð­stöðvum CNN og fleiri fjölmiðla, við 59. stræti í New York.

Í gærkvöldi sagði Trump að það yrði gott fyrir tengsl Bretlands og Banda­ríkjanna ef Nigel Farage, einn af leiðtogum UKIP í Bretlandi sem barðist fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu, yrði sendi­herra Bretlands í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár