Segir Hildi Lilliendahl veika: „Ég mun biðja fyrir þér“

Hildur Lilliendahl birtir skjáskot af skila­boðum sem Jón Gunnar Sævarsson sendi henni í hádeginu. Jón Gunnar er eigandi Orange Project félags sem sérhæfir sig í leigu á skrif­stofum. Félagið býður jafnframt upp á almanna­tengsl.

„Góðan daginn og gleðilegt nýtt ár. Ég mun biðja fyrir þér, þú ert greini­lega mikið veik. b.kv. JGS,“ segir Jón Gunnar Sævarsson, eigandi almanna­tengsla­félagsins og skrifstofu­hótelanna Orange Project  í skila­boðum til Hildar Lilliendahl í hádeginu.

Skilaboðin „upp úr þurru“

Rekur almannatengslaþjónustu
Rekur almanna­tengsla­þjónustu Jón Gunnar Sævarsson vildi ekki tjá sig um skilaboð til Hildar Lilliendahl.

Hildur segir engan aðdrag­anda að þessum skila­boðum. „Engin forsaga mér vitanlega. Þetta kom bara núna í hádeginu upp úr þurru. Jóla­andinn eða eitthvað,“ segir Hildur. Jón Gunnar vildi ekkert tjá sig um málið. „Já, hvað með það? Það er bara no comment,“ svaraði Jón Gunnar spurður um hvers vegna hann hafi ákveðið að senda þessi skilaboð.

Stuttu eftir samtalið sendi Jón Gunnar blaða­manni tölvupóst. „Ert þú með aðgang að einka­skilaboðum Hildar?“ spurði hann.

Helsta starfsemi félags Jóns Gunnars er leiga skrifstofu­rýmis til einyrkja og minni félaga. Auk þess býður það upp á ýmsar „lausnir“ fyrir félög svo sem bókhalds­þjónustu, ritara- og lögfræði­þjónustu sem og almanna­tengsl.

„Þarftu að ná til fjöldans? Vekja á þér athygli? Kynna nýja vöru eða þjónustu? Standa vörð um ímynd þína? Ná tökum á neikvæðri umræðu eða vekja athygli á einhverju jákvæðu?

„Í þessum efnum vitum við upp á okkar tíu fingur hvað við erum að gera.“

Samanlögð reynsla starfs­fólks Orange Project við fjölmiðla, markaðs­setningu og ímyndar­vinnu hleypur á áratugum. Í þessum efnum vitum við upp á okkar tíu fingur hvað við erum að gera og höfum yfir að ráða gríðar­lega umfangs­miklu tengsla­neti,“ segir í lýsingu á starfseminni.

Hildur hefur vakið mikla athygli undan­farin ár bæði vegna ummæla sem aðrir hafa látið falla um hana sem og ummæli sem hún sjálf hefur látið falla. Árið 2012 bjó hún til síðuna Karlar sem hata konur á Facebook þar sem hún tók saman ummæli sem hún taldi vera fjandsamleg konum. Í kjölfar þess varð hún ein umtalaðasta kona Íslands og fékk fjölda haturs­pósta. Árið 2014 greindi Hafdís Huld frá því að hún hafi orðið fyrir einelti Hildar á netinu. 

Ásökun um ófrægingarherferð

Einn starfs­manna Orange Project hefur eldað grátt silfur við Hildi um nokkurt skeið. Nú síðast í sumar greindi DV frá því að hann hefði skrifað stöðu­færslu þar sem hann sakaði Hildi um að vera í ófrægingar­herferð gegn sér. 

„Æskuástin mín, fyrsta eigin­konan mín og móðir tveggja elstu barna minna var að segja mér að það sé smear campaign í gangi gegn mér og Führer Hildur Lilliendahl sé að safna sögum um mig. Go crazy maðafakkass. Setjum einn morðingja­hamar í hausinn á mér í leiðinni,“ skrifaði starfs­maðurinn í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár