Þarf ekki að byggja tvær Kárahnjúkavirkjanir til að leggja sæstreng

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Það þarf ekki að reisa tvær Kára­hnjúka­virkjarnir til að framleiða orku fyrir raforku­sæstreng til Bretlands, Bretar hafa nú staðfest að þeir eru tilbúnir að greiða með orku frá Íslandi sem yrði flutt til Bretlands um strenginn og þjóð­hagsleg arðsemi af lagningu strengsins fyrir hvort land fyrir sig yrði 25-30 milljarðar króna. Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar.

Skýrsla um kostnaðar- og ábata­greiningu á lagningu sæstrengs milli Íslands, sem unnin var af Kviku í ráð­gjafa­fyr­ir­tækið PÖYRY, var kynnt í gær. Sam­kvæmt henni, þá eru vís­bend­ingar um að lagn­ing 800 til­ 1.200 km. sæstrengs kunni að reyn­ast bæði Íslands og Bret­landi þjóð­hags­leg og við­skipta­lega arð­söm. For­senda þess virð­ist þó vera að bresk stjórn­völd séu reiðu­búin að styðja við verk­efnið líkt og þau styðja í dag þar­lenda nýja end­ur­nýj­an­lega raf­orku­vinnslu.

50 til 60 milljarðar króna á ári í arðsemi

Lands­virkjun hefur lengi haft áhuga á að kanna möguleika þess að bæta sæstreng við sem viðskipta­vini fyrir­tækisins. Hörður skrifaði til að mynda grein í Morgun­blaðið fyrir rúmu ári þar sem hann sagði sæstrenginn vera mjög áhuga­verðan kost.

Hörður segir skýrslu Kviku og PÖYRY svara mörgum spurningum. Þar komi til að mynda fram að þjóð­hagsleg arðsemi yrði 50 til 60 milljarðar króna sem myndi skiptast til jafns milli þjóðanna tveggja, Íslands og Bretlands. Þá sé búið að borga mjög viðunandi arðsemi á allar framkvæmdir í báðum löndum og taka tillit til kostnaðar­verðs­þátta, svo sem hækkana á rafmagns­verði til fyrir­tækja og heimila, sem lækkar ávinninginn. „Okkar grund­völlur var að fá það staðfest að Bretar væru tilbúnir til að nýta sér styrkja­kerfið sem þeir hafa fyrir orku­vinnslu fyrir verkefnið, en Bretar eru þegar að greiða með allri orku sem er til í Bretlandi. Það fékkst staðfest.“

Pólitísk ákvörðun

Í fréttum í gær var niður­staða skýrslunnar sögð vera sú að virkja þyrfti á við tvær Kára­hnjúka­virkjanir til að búa til orkuna sem sæstrengur myndi kalla á. Hörður segir þá ályktun ekki byggja á niður­stöðu skýrslunnar að neinu leyti. „Samkvæmt miðsviðs­mynd skýrslunnar þarf um 1500 megavött til. Stór hluti þess afls - Um það bil ein Kára­hnjúka­virkjun - myndi koma úr bættri nýtingu. Umhverfis­áhrif þess yrðu engin. Þá myndu líka koma til smærri virkjanir í vatnsafli, vindi og jarðvarma sem myndu selja inn á kerfið, en væri að öðrum kosti ekki hagkvæmt að gera. Í þriðja lagi væri um hefð­bundna virkjana­kosti að ræða og úr þeim þyrftu að koma um 250 megavött. Það er álíka stórt og Hrauneyja­fossvirkjun, en mun minna en Kára­hnjúka­virkjun. Að okkar mati er því ekki rétt að leggja þetta svona upp eins og gert var.“

Hörður leggur þó áherslu á að það sé alltaf pólitísk ákvörðun hvort ráðist verði í lagningu sæstrengs eða ekki. „Það á eftir að fara fram mikil umræða um þetta mál en skýrslan er gott innlegg í þá umræðu. Ég myndi segja að það þyrfti að meta þá valkosti sem Íslendingar hafa fyrir sína orku­notkun. Sæstrengur breytir því ekki hvað við ákveðum að virkja í hefð­bundnum virkjana­kostum. Það er ákvörðun sem stjórn­völd taka með ramm­áætlunar­ferli og svo pólitískum ákvörðunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár