Forstjóri Landsvirkjunar: Sæstrengur mjög áhugaverður kostur

„Sæstrengur er mögulega mjög áhugaverður viðskipta­vinur fyrir fyrir­tækið. Fyrir liggur að í boði gæti verið umtals­vert hærra orkuverð en nemur meðal­verði Lands­virkjunar, þannig að um er að tefla mikla fjárhags­lega hagsmuni fyrir fyrir­tækið og þjóðina alla. Með tengingu við aðra markaði gæfist okkur kostur á að nýta þá umfram­orku sem óhjá­kvæmilega er til staðar í lokuðu raforku­kerfi,“ skrifar Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, í grein í Morgun­blaðinu í dag.

Þá skrifar Hörður um hvernig eftir­spurn eftir endurnýjanlegri orku hefur aukist jafnt og stöðugt, ekki síst eftir að Bandaríkja­menn og Evrópu­sambandið hófu að leggja áherslu á að auka hlut endurnýjanlegrar orku í orku­fram­leiðslunni. Þá hafi eftir­spurnin sömuleiðis aukist þar sem orku­öryggi sé víða í hættu, til að mynda á Bretlandi, en Bretar hafa lýst yfir eindregnum vilja til að kaupa raforku af Lands­virkjun í gegnum raforku­sæstreng sem lagður yrði á milli þjóðanna.

„Bretar hafa mikinn áhuga á því að gera langtíma samninga um orkukaup og breska ríkis­stjórnin hefur þegar gert samninga við fjölmarga aðila sem tryggja ákveðið aukagjald fyrir afhendingar­öryggi. Þeir líta svo á að um þjóðar­öryggi sé að tefla.“

Ýmsum spurningum ósvarað


Þá segir Hörður að við mat á kostum og göllum sæstrengs sé nær­tæk­ast að líta til reynslu Norð­manna, sem hafi góða reynslu af teng­ingu við Holland í gegnum lengsta sæstreng í heimi, NorNed-streng­inn, en Norðmenn hafa nú þrjá nýja sæstrengi á teikni­borð­inu.

„Vissulega er ýmsum spurningum ósvarað þegar litið er til heildar­áhrifa þessarar framkvæmdar. Til að mynda þarf að tryggja leiðir til að raforku­verð til heimila hækki ekki umtals­vert og um leið þarf að búa svo um hnútana að samkeppnis­umhverfi iðnaðar á Íslandi sé tryggt.“

Forstjóri Lands­virkjunar segir að í lagningu sæstrengs til Bretlands myndi sömuleiðis felast aukið orku­öryggi fyrir Íslands, því hægt sé að flytja raforku í báðar áttir. „Við Íslendingar búum að mínu mati ekki við fullnægjandi orku- öryggi eins og staðan er núna. Eins og okkur er fullljóst getur fyrirvara­laust brostið á með náttúru­hamförum eða bilunum, auk þess sem við getum auðveldlega lent í þeirri stöðu að eftir­spurn eftir orku verði meiri en framboðið, sér í lagi ef vatnsárið er í lakara lagi.“

Þá undir­strikar Hörður í grein sinni mikilvægi þess að viðskiptalegar forsendur ráði för við ákvarðana­töku Lands­virkjunar. „Það er mikilvægt að hafa í huga að sæstrengur er eins og hver annar viðskipta­vinur og hvert annað tækifæri í augum okkar. Við störfum á viðskipta­legum forsendum og ef góðir samningar nást um orkuverð sjáum við fram á stóraukna arðsemi af auðlindinni, í samræmi við það hlutverk Lands­virkjunar að hámarka afrakstur af þeim orku­lindum sem fyrir­tækinu er trúað fyrir, með sjálfbæra nýtingu, verðmæta­sköpun og hagkvæmni að leiðar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár