Nettó ábati sæstrengs um 190 milljarðar – „Ræðið“

Lagning sæstrengs milli Íslands og Bretlands er háð miklum nývirkjunum á Íslandi. Óvissa er um pólitíska framvindu málsins, meðal annars vegna Brexit-kosninganna.

„Nú eru gögnin komin á borðið, og ég segi; ræðið“ sagði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, að loknum ítarlegum kynningar­fundi á skýrslum um skoðun á lagningu sæstrengs milli Íslands og Evrópu, einkum Bretlands. Á fundinum kynnti Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, einnig skýrslu um kostnaðar- og ábata­greiningu á lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands.

Mikil áhrif á hagvöxt

Samkvæmt henni, þá eru vísbendingar um að lagning 800 til 1.200 km. sæstrengs kunni að reynast bæði Íslands og Bretlandi þjóð­hagsleg og viðskipta­lega arðsöm. „Forsenda þess virðist þó vera að bresk stjórn­völd séu reiðubúin að styðja við verkefnið líkt og þau styðja í dag þarlenda nýja endurnýjanlega raforku­vinnslu. Fyrir Ísland er nettó ábatinn um 1,4 milljarðar evra og árleg jákvæð áhrif á lands­framleiðslu á bilinu 1,2 til 1,6 prósent sem eru umtals­verð varanleg jákvæð áhrif,“ segir almennum niðurstöðu­kafla skýrslu Kviku, sem unnin var í samstarfi við ráðgjafa­fyrirtækið PÖYRY.

Heildar­kostnaður við lagningu sæstrengs er metin á milli 3 til 3,5 milljarðar evra, eða sem nemur um allt að 476 milljörðum króna miðað við núverandi gengi krónu gagnvart evru (136 ISK = 1 evra). Þá er áætlað að kostnaður við styrkingu flutnings­kerfis á Íslands, til þess að gera sæstrenginn mögulegan, sé 30 til 75 milljarðar króna. Til viðbótar komi svo fleiri virkjanir.

Miklar virkjanir þarf til

Sæstrengur kallar á fjár­festingar í raforku­vinnslu upp á 1.459 MW af nýju uppsetti afli, samkvæmt því sem nefnt er mið-sviðsmynd í skýrslu Kviku. Það afl sem nemur meiru en tvöfaldi afli Kára­hnjúka­virkjunar, sem langsamlega stærsta virkun á Íslandi.

Er ráðgert að sú raforka komi að hluta úr þeim virkjana­kostum sem eru í nýtingar­flokki ramma­áætlunar, meðal annars frá smávirkjunum, vindorku, lágjarða­varma og aflaukningu í núverandi virkjunum. Sé horft til reynslu Noregs er áætlað að hæg sé að reisa um 150 MW af nýjum smávirkjunum, sem eru undir 10 MW, með tilkomu sæstrengs.

Ljóst er að ramma­áætlunin, og hvernig hún mun taka á því hvar má virkja og hvar ekki, mun ráða miklu um hvort sæstrengurinn verður yfir höfuð raunhæft verkefni.

Þá er tekið fram í samantekt um málið, að hefð­bundin viðskipta­líkön og regluverk fyrir sæstrengi ná ekki yfir þetta tiltekna verkefni. Sérsníða þarf viðskipta­líkan, regluverk og stuðnings­kerfi fyrir verkefni og fá fyrir því samþykki eftirlits­aðila. Þá kom fram á fundinum í dag, að í viðræðum milli starfs­hópa Íslands og Bretlands hefði töluvert verið rætt um almenningsáltið gagnvart sæstreng, bæði á Íslandi og í Bretlandi.

Óvissa og ekkert ákveðið í bráð

Ragn­heiður Elín sagði að ljóst væri að engar ákvarðanir yrðu teknar um sæstrenginn á þessu kjör­tímabili, en markmiðið með vinnunni sem hefði farið fram, væri að draga fram allar upplýsingar og meta verkefni heild­stætt, ekki síst í ljósi þess að það hefði mikil áhrif til langs tíma.

Þá nefndi Ragn­heiður Elín að niður­staða Brexit kosninganna gæti haft áhrif á sæstrengs­verkefnið, meðal annars vegna þess að Bretland gæti misst mögu­leikanna á niður­greiðslu­kerfi Evrópu­sambandsins þegar kemur að uppbyggingu orku­mannvirkja. „Þá er reiknað með því að strengurinn sé tengdur við Skotland, og í ljósi stöðunnar nú er erfitt að segja til um hvernig málin þróast,“ sagði Ragn­heiður Elín. Hún nefndi einnig að gengis­þróun gæti haft mikil áhrif á verkefnið.

Kjarninn mun fjalla ítarlega um sæstrengs­skýrslurnar, sem gerðar voru opinberar í dag, á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár