Trump setur tolla á vöruinnflutning frá Kína

Bandaríkja­forseti heldur áfram tolla­stríði sínu.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur fyrskipað nýja tolla á vöruinnfluttning á kínverskar vörur. Samanlagt eru þeir taldir vera upp á um 50 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 5.500 milljarða króna miðað við núverandi gengi.

Samkvæmt umfjöllun Bloomberg horfir Trump meðal annars til iðngreina sem Kínverjar vilja vera búnir að ná forystu á heimsvísu í fyrir árið 2025.

Um 1.300 vöru­tegundir hafa verið undir í þessum hugmyndum Trump, en ekki hefur gert grein fyrir því formlega hvenær þessir tollar eiga að taka gildi og hvaða vöru­tegundir muni falla undir tollana.

Eins og kunnugt er hefur Trump skapað sér miklar óvin­sældir hjá mörgum vina­ríkjum Banda­ríkjanna með því að boða hækkun tolla á ýmsan varning, þar á meðal 25 prósent toll á stáll og 10 prósent á ál, frá Evrópu, Kanada og Mexíkó. Þessi mál urðu meðal annars til þess að leiðtoga­fundur G7 ríkja heimsins leystist upp, og fór Trump fyrr af fundinum en hann hafði ætlað sér upphaf­lega.

Samkvæmt umfjöllun Bloomberg eru miklar líkur taldar á því að þessum tollum verði mótmælt harðlega en Kínverjar hafa reynt að tala um fyrir Trump, og talað fyrir auknu viðskipta­frelsi og að alþjóð­legir viðskipta­samningar haldi í viðskiptum milli landanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár