Stöðvuð við dreifingu kynningarefnis í Valhöll

Áslaug Frið­riks­dóttir, fram­bjóð­andi í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mátti ekki dreifa bæk­lingum á fundi Hvatar í Valhöll því atkvæða­greiðsla utan kjör­fundar var þegar hafin í sömu bygg­ingu.

Starfs­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafði afskipti af dreif­ingu kynn­ing­ar­efnis fyrir fram­boð Áslaugar Frið­riks­dóttur í leið­toga­próf­kjör­inu í Reykja­vík á hádeg­is­fundi Hvatar, félags sjálf­stæð­iskvenna, í Valhöll í gær.

Ástæðan er sú að utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla var í gangi í sömu bygg­ingu meðan á fund­inum stóð og áróður er bann­aður á kjör­stað. 

Áslaug segir í sam­tali við Stundina að sér hafi komið á óvart að hún mætti ekki kynna fram­boðið sitt á fund­inum, enda hafi atkvæða­greiðslan farið fram á annarri hæð í bygg­ing­unni. 

Hún tekur fram að venju­lega hafi Hvöt staðið að sér­stökum fundi fyrir kven­fram­bjóð­endur í Reykja­vík, en nú hafi hún verið eina konan sem var í fram­boði.

Haldinn hafi verið hádeg­is­fundur um nýsköpun í opin­berri þjón­ustu og sér verið boðið að halda erindi ásamt fleiri sjálf­stæð­is­konum. 

„Kannski eru menn eitt­hvað að fara á taugum. Ef svo er ég þá lít ég á þetta sem styrk­leika­merki fyrir mitt fram­boð,“ sagði Áslaug í gær þegar Stundin og Vísir.is greindu frá því að hann hefði verið meinað að halda erindi á fund­inum á þeim grund­velli að áróður á kjör­stað væri bann­aður. 

„Það er langt síðan fund­ur­inn var aug­lýstur og það hefði þá átt að gera athuga­semd við þetta fyrr,“ segir Áslaug í sam­tali við Stundina og stað­festir að höfð hafi verið afskipti af dreif­ingu hennar á kynn­ing­ar­efni. Hún seg­ist hafa talið sig vera í fullum rétti til að dreifa slíku efni á fund­inum, enda væri kjör­staður ekki á þeirri hæð sem fund­ur­inn fór fram heldur á annarri hæð í bygg­ing­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Var and­vígur frek­ari upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis fyrir kosn­ingar en gagn­rýnir nú meiri­hlut­ann fyrir að hunsa vand­ann

Eyþór Arnalds lýsti sig ger­sam­lega mót­fall­inn auk­inni áherslu á upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis í Reykja­vík í kosn­inga­prófi RÚV í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Nú leggur hann fram bók­anir þar sem meiri­hlut­inn er gagn­rýndur fyrir að „hunsa mála­flokk­inn“.
FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæj­ar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæj­ar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borg­ar­stjóra New York og London. Báðir bæj­ar­stjórar eru á hærri launum en for­sæt­is­ráð­herra. Laun bæj­ar­stjóra Kópavogs hækk­uðu um tæp 58% á kjör­tíma­bil­inu og laun bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar um 36%. „Allt órétt­læti mun kalla á meiri óánægju,“ segir for­maður stétt­ar­fé­lags­ins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár